Ný skýrsla um gæði samsettra myndkorta af Íslandi sumarið 2025
Náttúrufræðistofnun hefur gefið út nýja skýrslu um gæði samsettra myndkorta sem unnin voru úr loftmyndum sem teknar voru sumarið 2025. Í skýrslunni er lagt mat á bæði staðsetningarnákvæmni og myndgæði gagnanna, sem eru mikilvægur grunnur fyrir landupplýsingar og kortagerð.
Niðurstöður sýna að myndkortin uppfylla kröfur útboðs um bæði lárétta nákvæmni og sjónræn gæði. Staðsetningarnákvæmni var metin með samanburði við viðmiðunarpunkta á jörðu og LiDAR-gögn, og reyndist innan skilgreindra marka. Myndgæði voru einnig metin, meðal annars með tilliti til sólarhæðar, skýjafars, snjóalaga og litajafnvægis, og uppfylltu þau almennt allar kröfur .
Minniháttar frávik komu fram á afmörkuðum svæðum, til dæmis vegna dreifðrar skýjahulu eða litabreytinga, en þau höfðu ekki veruleg áhrif á heildarniðurstöður og gögnin voru talin hæf til notkunar.
Loftmyndir sem teknar voru árið 2025 eru aðgengilegar í Kortaglugga Íslands.