Skip to main content
search

Ný vísindagrein um rannsóknir á meinfræði rjúpu

Nýlega var birt vísindagrein í tímaritinu Icelandic Agricultural and Environmental Sciences um niðurstöður meinafræðilegra rannsókna á rjúpum.  Þessi rannsókn var hluti af stærra verkefni sem fjallaði um tengsl heilsufars og breytinga á stofnstærð rjúpu. 

Rannsóknirnar voru unnar á árunum 2006 til 2018 á Norðausturlandi. Í greininni er lýst stórsæjum og vefjafræðilegum breytingum sem fundust bæði við kerfisbundna sýnatöku og sýnatöku vegna tilfallandi skemmda í líffærum. 

Helstu meinafræðilegu niðurstöðurnar voru kláðabreytingar, með tíðni upp á 18,3%, og útfellingar oxalatkristalla í nýrnapíplum, með tíðni upp á 25,3%. Kláðinn stafaði af húðmaurasýkingu og var kvillinn algengari hjá ungum fuglum en fullorðnum og einnig algengari hjá kvenfuglum en körrum. Kynjamunurinn var rakinn til hærri tíðni kláðans hjá fullorðnum kvenfuglum samanborið við fullorðna karra. Tíðni útfellinga oxalatkristalla í nýrnapíplum var ekki mismunandi eftir aldri eða kyni, en meðalgildi alvarleikastigs kvillans var hærra í ungfuglum en fullorðnum. Oxalatkristallar geta haft eiturverkan og fá rjúpurnar efnið í sig úr fæðunni.

Þrátt fyrir að hníslar hafi fundist í saursýnum og í vefjasneiðum af þörmum sáust hverfandi litlar vefjameinafræðilegar skemmdir í slímhúð þarma. Óvænt var að sjá skaða vegna áverka í 2,6% fuglanna. 

Rannsóknin sýnir mikilvægi vefjafræðilegrar rannsóknar á líffærasýnum úr fuglum sem veiðimenn hafa safnað. 

Ólafur Karl Nielsen vistfræðingur og starfsmaður Náttúrufræðistofnunar er meðal höfunda greinarinnar. 

Sigurðardóttir, Ó. G., Skírnisson, K., & Nielsen, Ó. K. (2026). Long-term pathological survey of Icelandic rock ptarmigan (Lagopus muta): Renal, dermatological, and traumatic lesions. Icelandic Agricultural and Environmental Sciences, 38, 23–41. https://doi.org/10.16886/IAS.2026.02