Skip to main content
search

Styrkur til rannsókna á elsta eini Íslands

Náttúrufræðistofnun hefur hlotið styrk úr Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar til rannsókna á elsta eini landsins. Verkefnið beinist að svæði við Mývatn þar sem elstu þekktu einiplöntur Íslands vaxa. Þar er að finna mjög gamla einirunna, suma yfir 400 ára gamla, og telst svæðið því eitt það merkilegasta á landinu hvað varðar eini og náttúruvernd. 

Markmið verkefnisins er að afla betri skilnings á uppruna þessa forna einisstofns, tengslum hans við aðra einistofna á Íslandi og hvernig best sé að vernda svæðið. Jafnframt verður kannað hvort fyrirhugaður vegur geti haft áhrif á eininn, til dæmis með auknu raski, slóðamyndun eða með því að auðvelda útbreiðslu ágengra tegunda. Verkefninu stýrir Pawel Wasowicz, grasafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun.

Rannsóknin skiptist í þrjú meginsvið. Í fyrsta lagi verða tekin sýni af eini við Mývatn og víðar um landið til að greina erfðafræðileg tengsl milli stofna. Í öðru lagi verður svæðið kortlagt með dróna og vettvangsathugunum til að fá nákvæma mynd af útbreiðslu runnanna og helstu ógnum sem steðja að þeim. Í þriðja lagi verða niðurstöðurnar nýttar til að móta tillögur um vernd svæðisins og útbúa einfalt fræðsluefni fyrir gesti. 

Verkefnið er mikilvægt af tveimur ástæðum. Annars vegar mun það auka þekkingu á eini á Íslandi, uppruna hans og stöðu einstakra stofna. Hins vegar mun það skapa hagnýtan grunn að vernd einnar merkustu plöntubyggðar landsins. Niðurstöðurnar geta þannig nýst vísindum, náttúruvernd og ábyrgri umsjón með svæðinu til framtíðar.