Vinnustofa um framandi tegundir á Íslandi vel sótt og kallað eftir samræmdum aðgerðum
Dagana 16.–17. mars var haldin vinnustofa um framandi tegundir á Íslandi í höfuðstöðvum Hafrannsóknastofnunar í Hafnarfirði. Vinnustofan var þéttsetin og sóttu hana yfir 80 þátttakendur á staðnum en með netþátttöku voru þeir tæplega 100. Náttúrufræðistofnun stóð að skipulagningu hennar í samstarfi við sjö aðrar stofnanir sem starfa að þessum málaflokki hér á landi á einn eða annan hátt en það voru Hafrannsóknarstofnun, Háskólinn á Hólum, Land og Skógur, Matvælastofnun, Náttúrustofa Suðvesturlands, Náttúrustofa Vesturlands og Náttúruverndarstofnun, auk Fullbright á Íslandi. Vinnustofan var meðal annars styrkt af umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu.
Á vinnustofunni komu saman íslenskir fræðimenn og sérfræðingar, fulltrúar stofnana og stjórnsýslu, auk erlendra þátttakenda, meðal annars frá Bretlandi, Tékklandi, Þýskalandi, Kanada og Bandaríkjunum. Markmið vinnustofunnar var að efla þekkingu og samráð um stöðu framandi tegunda hér á landi, helstu áskoranir og mögulegar aðgerðir.
Fjallað var um framandi tegundir í vistkerfum á landi, í ferskvatni og í hafi. Meðal viðfangsefna voru flutningsleiðir framandi tegunda til landsins, áhættumat og áhrif ágengra tegunda, stjórnun og regluverk, auk þátta sem tengjast meðal annars ferðaþjónustu, fiskeldi og skógrækt. Einnig var rætt um meindýr og sjúkdómsvalda sem geta borist til landsins og mögulegar framtíðarógnir.
Fram kom að áhrif ágengra framandi tegunda fara vaxandi, bæði hér á landi og annars staðar. Lögð var áhersla á mikilvægi forvarna og þess að draga úr líkum á að framandi tegundir berist til landsins. Jafnframt var bent á að áhrif slíkra tegunda geta komið fram löngu eftir að þær berast og fara að dreifa sér.
Í umræðum komu fram nokkur lykilatriði. Þar má nefna þörf fyrir aukið samstarf milli ráðuneyta, stofnana og rannsóknaaðila, auk samræmdrar nálgunar í viðbrögðum við ágengum tegundum. Einnig var lögð áhersla á mikilvægi aukinna rannsókna, vöktunar og langtímaeftirlits til að fylgjast með hvaða tegundir berast til landsins og meta áhrif þeirra.
Þá var bent á þörf fyrir aukna fræðslu og miðlun upplýsinga, þannig að almenningur, atvinnulíf og stjórnvöld séu betur upplýst um áhrif framandi tegunda og mögulegar aðgerðir. Jafnframt kom fram að gagnlegt væri að móta heildstæða landsáætlun um ágengar framandi tegundir, með áherslu á forvarnir, vöktun, skjót viðbrögð og stjórnun.
Vinnustofan lagði grunn að áframhaldandi samstarfi og umræðu um málefni framandi tegunda á Íslandi og sýndi að vilji er til staðar til að efla samræmd viðbrögð á landsvísu.