Skip to main content
search

Ársskýrsla 2025 komin út

Náttúrufræðistofnun hefur gefið út ársskýrslu fyrir árið 2025. Þetta er fyrsta heila starfsár sameinaðrar stofnunar eftir að Náttúrufræðistofnun Íslands, Landmælingar Íslands og Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn sameinuðust um mitt ár 2024.

Í skýrslunni er farið yfir helstu verkefni ársins og starfsemi stofnunarinnar á breiðum fræðasviðum. Gerð er grein fyrir rannsóknum og vöktun á náttúru Íslands, þróun og rekstri landmælikerfa og landupplýsinga, auk fjölbreyttra verkefna sem tengjast kortlagningu, gagnavinnslu og miðlun upplýsinga. Þá er einnig fjallað um skipulag og mannauð, erlent samstarf og rekstur stofnunarinnar.

Árið 2025 einkenndist af áframhaldandi uppbyggingu og samþættingu starfsemi hinnar nýju stofnunar. Unnið var að samræmingu verkferla og kerfa, auk þess sem lögð var áhersla á að efla þverfaglegt samstarf og nýtingu gagna þvert á fræðasvið. Rannsóknir og vöktun á náttúru landsins voru áfram kjarninn í starfseminni.

Ársskýrslan er birt í vefformi sem gerir hana aðgengilega og auðvelt er að fletta á milli efnisflokka og kafla. Einnig er hægt að nálgast hana í pdf-formi. Skýrslan er myndræn og inniheldur fjölbreyttar ljósmyndir sem endurspegla starfsemi stofnunarinnar og íslenska náttúru.

Ársskýrsla 2025