Frjókornatímabilið hafið
Vorið er á næsta leyti og með því hefst frjókornatímabilið. Á þessum tíma er einkennum frjóofnæmis oft ruglað saman við einkenni kvefs.
Á sumum svæðum landsins eru frjókorn af elri (Alnus) nú þegar komin í loftið. Þótt elritegundir sé ekki upprunnar á Íslandi hafa nokkrar innfluttar tegundir numið hér land og finnast nú víða. Blómgunartími þeirra er breytilegur, bæði milli tegunda og eftir landshlutum, og því geta sumar þegar verið farnar að losa frjókorn á meðan aðrar eiga það eftir.
Allar elritegundir framleiða frjókorn sem berast með vindi og eru þekktir og öflugir ofnæmisvaldar. Einstaklingar sem er viðkvæmir fyrir einni tegund er yfirleitt einnig viðkvæmir fyrir öðrum tegundum innan sömu ættar. Þá er þekkt víxlverkun milli tegunda innan bjarkarættar (Betulaceae), þar á meðal birkis, og elris.
Af þeim sökum geta þeir sem þjást af ofnæmi fyrir birkifrjókornum fundið fyrir einkennum snemma á tímabilinu, þegar styrkur elrifrjókorna er orðinn hár á tilteknum svæðum.