Skip to main content
search

Ný rannsókn varpar ljósi á köfnunarefnisflæði í Mývatni

Ný vísindagrein sem birtist í tímaritinu Aquatic Ecology fjallar um köfnunarefnisbindingu og flæði köfnunarefnis í Mývatni. Niðurstöðurnar benda til að blábakteríur í vatninu gegni lykilhlutverki í að miðla köfnunarefni til lífríkisins á botninum, þar sem það er nýtt til frumframleiðslu.

Í vötnum, þar sem köfnunarefni er af skornum skammti, eru stundum blábakteríur sem geta bundið köfnunarefni úr andrúmsloftinu í frumum sínum. Í rannsókninni var skoðað hvernig þessi binding fer fram í Mývatni, bæði í vatnsbolnum og á botninum, og hversu mikið af því köfnunarefni sem binst helst í vistkerfinu.

Það magn köfnunarefnis sem þarf að bindast innan vatnsins til að ekki verði skortur er mjög breytilegt milli ára. Það ræðst einkum af því hversu mikið köfnunarefni tapast úr vatninu, annars vegar með útfalli um Laxá og hins vegar með mýflugum sem flytja næringarefni úr vatninu upp á land er þær klekjast.

Rannsóknin bendir til þess að geta til köfnunarefnisbindingar sé mun meiri í sviflaginu en á botninum. Jafnframt sýna niðurstöðurnar að stór hluti þess köfnunarefnis sem myndast í sviflaginu þarf að flytjast niður í botnvistina til að stemma við það magn köfnunarefnis sem tapast með útfalli árinnar.

Saman benda þessar niðurstöður til þess að köfnunarefnisbinding blábaktería í sviflaginu geti gegnt lykilhlutverki í að viðhalda köfnunarefnisbúskap vistkerfis Mývatns.

Árni Einarsson líffræðingur, fyrrum forstöðumaður Náttúrurannsóknastöðvarinnar á Mývatni, er meðal höfunda greinarinnar.

Book, K. R., Botsch, J. C., Hart, I. S., Einarsson, Á., og Ives, A. R. (2026). Patterns of benthic and pelagic nitrogen fixation and retention in Lake Mývatn. Aquatic Ecology. https://doi.org/10.1007/s10452-026-10278-2