Ný rannsókn varpar ljósi á sveiflur í botndýralífi Mývatns
Ný vísindagrein sem birtist í tímaritinu Aquatic Ecology fjallar um sveiflur í stofnum botnlægra krabbadýra í Mývatni og hvaða þættir hafa mest áhrif á þær. Niðurstöðurnar benda til þess að lirfur slæðumýs, Tanytarsus gracilentus, algengustu mýflugutegundarinnar við Mývatn, gegni lykilhlutverki í að móta sveiflurnar.
Vöktun á lífríki Mývatns hefur leitt í ljós miklar og sveiflukenndar breytingar í stofnum botnlægra krabbadýra, sem gegna mikilvægu hlutverki sem fæða fyrir fugla og fiska. Margt bendir til þess að slæðumý sé undirrót þeirra. Lirfur tegundarinnar geta náð svo miklum þéttleika á botni vatnsins að fæða gengur til þurrðar og stofninn hrynur. Þetta hefur áhrif á aðra lífverustofna í vatninu þar sem þeir eru ýmist keppinautar lirfanna eða ofar í fæðuvefnum.
Í rannsókninni voru greindar breytingar í stofnum átta tegunda krabbadýra sem safnað var yfir 29 ára tímabil, frá 1995 til 2023. Rannsakað var hvort sveiflur í stofni slæðumýs stýrðu breytingum í fjölda krabbadýra. Einnig var skoðað hvort hornsíli og svifþörungar í vatninu hefðu áhrif á stofnstærðir krabbadýranna. Í ljós kom að stofnar mismunandi krabbadýrategunda sveiflast á ólíkan hátt og má skipta þeim í þrjá hópa eftir því hvernig þær bregðast við umhverfisþáttum. Hópur tegunda sem lifa grafnar í botninum sveiflaðist í gagnstæðum takti við slæðumý, þannig að þær náðu mestum þéttleika þegar lirfan var fágæt. Tegundir sem lifa bæði í botni og sviflagi, og eins og tegundin kornáta, Eurycercus lamellatus, (sem var meðhöndluð sem sérstakur hópur), virtust hins vegar ekki verða fyrir sterkum áhrifum af slæðumýi. Þótt hornsíli og skyggni vatnsins hefðu áhrif á sumar tegundir, staðfestir rannsóknin að slæðumý sé helsti drifkrafturinn á bak við breytingar í samfélagi botnlægra krabbadýra.
Árni Einarsson líffræðingur, fyrrum forstöðumaður Náttúrurannsóknastöðvarinnar á Mývatni, er meðal höfunda greinarinnar.
Adler, E. L., Kirk, A., Einarsson, Á., Burns, E. M., Hart, I. S., Book, K. R., og Ives, A. R. (2026). Dynamics and drivers of benthic crustaceans in Lake Mývatn. Aquatic Ecology. https://doi.org/10.1007/s10452-026-10282-6