Ný rannsókn varpar ljósi á uppruna lyngbobba á Íslandi
Ný vísindagrein sem birtist í tímaritinu Journal of Conchology fjallar um uppruna og útbreiðslu lyngbobba, Arianta arbustorum, í Evrópu, með sérstakri áherslu á Norðurlönd og Eystrasaltssvæðið. Niðurstöðurnar benda til þess að snigillinn hafi borist til Íslands oftar en einu sinni, líklega með tilstuðlan mannsins.
Lyngbobbi er algengur víða um Evrópu og finnst allt frá Pýreneafjöllum í suðri til norðurhluta Noregs, og frá Bretlandseyjum í vestri til Rússlands í austri, auk þess sem hann hefur numið land á eyjum á borð við Ísland og Færeyjar. Þrátt fyrir þessa víðtæku útbreiðslu hefur lítið verið vitað um stofna á Norðurlöndum og við Eystrasalt.
Í rannsókninni voru bornar saman erfðaupplýsingar snigla víðs vegar að úr Evrópu, þar á meðal frá Íslandi. Niðurstöðurnar sýna að sniglar á Norðurlöndum og við Eystrasalt tilheyra sameiginlegum hópi sem hefur dreifst tiltölulega nýlega til norðlægra svæða. Þetta styður þá hugmynd að útbreiðsla tegundarinnar hafi fylgt breytingum í umhverfi og loftslagi eftir síðustu ísöld.
Lyngbobbar á Austurlandi eru mun minni en þeir sem finnast annars staðar á landinu og hefur verið talið að þar sé að finna sérstaka undirtegund, Arianta arbustorum pseudorudis. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu hins vegar ekki fram á skýra erfðafræðilega aðgreiningu þessara eintaka frá öðrum lyngbobbum á landinu. Rannsóknin bendir jafnframt til þess að snigillinn hafi borist til Íslands í fleiri en einu tilviki.
Matthías Svavar Alfreðsson, skordýrafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, er einn af höfundum greinarinnar.
Salvador, R. B., Flanagan, E., Alfreðsson, M. S., Bawin, T. G. A., Sarapuu, J. og Tomotani, B. M. (2026). Phylogeographic relationships of Baltic and Nordic populations of the Copse Snail Arianta arbustorum, with taxonomical implications. Journal of Conchology.
https://doi.org/10.61733/jconch/4571