Skip to main content
search

Nýtt fjölrit um hánorræna kolkrabbategund komið út

Nýtt rit í ritröðinni „Fjölrit Náttúrufræðistofnunar“ er komið út. Það er á ensku og ber heitið „First report on females of Muusoctopus sibiricus (Cephalopoda: Octopoda): An endemic octopod species from the high Arctic Ocean“.

Í ritinu er í fyrsta sinn fjallað ítarlega um kvendýr hinnar hánorrænu kolkrabbategundar Muusoctopus sibiricus, sem lifir á landgrunnssvæðum Íshafsins. Tegundin er lítt þekkt og aðeins fáein eintök hafa áður verið rannsökuð. Með þessari rannsókn er bætt verulega úr þekkingarskorti á líffræði hennar, einkum hvað varðar byggingu og æxlun kvendýra.

Rannsóknin byggir á greiningu fjögurra eintaka sem veiddust í Beaufort-hafi og Amundsenflóa á árunum 2017–2019. Niðurstöðurnar sýna meðal annars að kvendýrin skortir ákveðin stækkuð sogskálapör sem finnast hjá karldýrum.

Í ritinu er einnig dregin upp uppfærð mynd af útbreiðslu tegundarinnar á norðurslóðum. Hún finnst á grunnsævi Íshafsins, að jafnaði ofan við um 500 metra dýpi, á svæði sem nær frá Laptevhafi í austri til Beaufort-hafs í vestri. Líkur eru á að tegundin sé einnig útbreidd meðfram Heimskautaeyjum Kanada og á landgrunni Grænlands, þar sem umhverfisaðstæður eru henni hagstæðar. Aftur á móti virðist sjávarhiti takmarka útbreiðslu hennar vestar, svo sem í Karahafi, Barentshafi og við Ísland, að undanskildri landgrunnsbrún undan Norðausturlandi.

Höfundar ritsins eru Alexey V. Golikov, Andrew R. Majewski, Philippe Archambault, Lisa Treau de Coeli, Guðmundur Guðmundsson og Rushan M. Sabirov. Það er aðgengilegt á vef stofnunarinnar:

Alexey V. Golikov, Andrew R. Majewski, Philippe Archambault, Lisa Treau de Coeli, Gudmundur Gudmundsson og Rushan M. Sabirov. (2026). First report on females of Muusoctopus sibiricus (Cephalopoda: Octopoda): An endemic octopod species from the high Arctic Ocean. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 62. Náttúrufræðistofnun. DOI: 10.33112/1027-832X.62