Skip to main content
search

Styrkur til rannsókna á gasríkum leirsteini í Breiðhillusetlögunum

Styrkur úr Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar hefur verið veittur til rannsókna á gasríkum leirsteini í Breiðhillusyrpunni. 

Breiðhillusyrpan er þykk syrpa setlaga sem finnst norðvestast á Vestfjarðakjálkanum, víða í um 100 til 300 m hæð yfir sjó. Syrpan ber vott um goshlé fyrir um 15 milljónum ára og markar hallamislægi í jarðlagastaflanum. Í henni eru sand- og siltsteinslög og surtarbrandur sem nýttur var til brennslu fram á 20. öld. Einnig finnst þar lag af rauðbrúnum leirsteini sem er sérlega viðkvæmur. Þegar hann kemst í snertingu við vatn brotnar hann hratt niður og losar umtalsvert magn af gasi. Þessi syrpa og leirsteininn ollu umtalsverðum vandræðum við gröft Bolungarvíkurganga. 

Markmið rannsóknarinnar er að öðlast betri skilning á uppruna þessa leirsteins, sögu hans og eiginleikum. Rannsóknin skiptist í þrjú meginsvið: Í fyrsta lagi verður Breiðhillusyrpan kortlögð mun ítarlegar og með öðrum áherslum en gert hefur verið hingað til. Í öðru lagi verður uppbygging syrpunnar skoðuð til að ákvarða umhverfi og þróun setmyndunar og varpa ljósi á tilurð og umgjörð leirsteinsins. Í þriðja lagi verður samsetning leirsteinsins og gassins sem hann losar ákvörðuð nákvæmlega sem og eðliseiginleikar bergsins. 

Verkefnið er mikilvægt af tveimur ástæðum. Annars vegar mun það auka þekkingu á myndun og eiginleikum þessa óvenjulega bergs. Hins vegar mun það skapa mikilvægan þekkingargrunn fyrir undirbúning, byggingu og viðhald mannvirkja á borð við jarðgöng.

Að verkefninu standa María Helga Guðmundsdóttir, jarðfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun og rannsóknasetri HÍ á Breiðdalsvík, og Bjarni Gautason, forstöðumaður rannsóknaseturs HÍ á Breiðdalsvík, í samstarfi við Steffen Mischke, prófessor við Háskóla Íslands, og vísindamenn við þrjár rannsóknastofnanir í Þýskalandi: Bundesanstalt für Geowissenschaften und Rohstoffe, Hessisches Landesamt für Natur, Umwelt, und Geologie og Technische Universität Darmstadt.