Vel sóttur kynningarfundur um örnefni og fugla á Breiðafirði
Fimmtudaginn 9. apríl var haldinn kynningarfundur í Amtsbókasafninu í Stykkishólmi um verkefnið „Örnefni og fuglar á eyjum og skerjum á Breiðafirði“.
Verkefnið á rætur sínar að rekja til ársins 1984 þegar Þorvaldur Þór Björnsson, starfsmaður Náttúrufræðistofnunar, hóf að skrá fuglalíf á eyjum Breiðafjarðar. Í kjölfarið hóf hann einnig markvissa skráningu örnefna á svæðinu. Skráningin byggir meðal annars á viðtölum og samstarfi við fjölmarga heimildarmenn sem hafa veitt mikilvægar upplýsingar um bæði fuglalíf og örnefni, og er nú orðin að umfangsmikilli og verðmætri heimild um náttúru og menningu svæðisins. Á fundinum kynnti Þorvaldur verkefnið og þróun þess í gegnum tíðina.
Eydís Líndal Finnbogadóttir forstjóri Náttúrufræðistofnunar setti fundinn og flutti ávarp. Að því loknu fluttu Bjarney Guðbjörnsdóttir, sérfræðingur í landupplýsingum, og Borgný Katrínardóttir, báðar starfsmenn stofnunarinnar, erindi þar sem fjallað var um hvernig gögn úr verkefni Þorvaldar hafa nýst, annars vegar við örnefnaskráningu og hins vegar við greiningu á útbreiðslu fugla á eyjum Breiðafjarðar. Þá hélt Aðalsteinn Hákonarson frá Árnastofnun erindi um örnefnanotkun og Erla Friðriksdóttir, formaður Breiðafjarðarnefndar fjallaði um verndun Breiðafjarðar.
Fundurinn var afar vel sóttur, bæði á staðnum og í streymi. Erindin voru fræðandi og áhugaverð og undirstrikuðu mikilvægi verkefnisins fyrir þekkingu á náttúru og menningararfi Breiðafjarðar.