Forstjóri Náttúrufræðistofnunar í stjórn EuroGeographics
Á ársfundi EuroGeographics, samtaka korta- og fasteignastofnana í Evrópu, sem haldinn var í Belgíu dagana 18.–19. maí, var kosið í stjórn samtakanna. Eydís Líndal Finnbogadóttir, forstjóri Náttúrufræðistofnunar, var kjörin í stjórn og mun sitja þar næstu tvö árin.
EuroGeographics eru sjálfstæð samtök evrópskra stofnana á sviði landmælinga, kortagerðar, fasteignaskráningar og landupplýsinga. Samtökin vinna að því að efla notkun traustra landfræðilegra gagna frá opinberum aðilum í Evrópu og mynda mikilvægan faglegan vettvang fyrir samstarf, þekkingarmiðlun og samræmingu korta og landupplýsinga milli landa.
Kjör Eydísar í stjórn samtakanna er viðurkenning á þeirri þekkingu og reynslu sem byggst hefur upp innan stofnunarinnar á sviði landmælinga, kortagerðar og landupplýsinga og styrkir jafnframt þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi á þessum vettvangi.