Skip to main content
search

Langtímarannsókn á stofnsveiflum mýflugna í Mývatni

Ný vísindagrein sem birtist nýverið í tímaritinu Aquatic Ecology fjallar um langtímasveiflur í stofnstærð og tegundasamsetningu mýflugna í Mývatni. Í rannsókninni greindu vísindamenn gögn úr mýflugnagildrum sem safnað var á Mývatnssvæðinu á árunum 1977–2023 til að rannsaka hvernig stofnar einstakra tegunda sveiflast í tíma og rúmi.

Rannsóknin byggir á einni lengstu samfelldu gagnaröð sem til er um mýflugur í heiminum. Gögnin byggja á sýnum sem safnað var með fjórum mýflugnagildrum á árunum 1977–2023 og níu gildrum á árunum 1999–2023. Með því var hægt að greina bæði langtímabreytingar í stofnstærðum og mun á tegundasamsetningu milli svæða í og við vatnið.

Niðurstöðurnar sýna að meirihluti algengra tegunda mýflugna í Mývatni gengur í gegnum nokkuð reglulegar stofnsveiflur með 3–4 ára eða 6–8 ára millibili. Af þeim 20 tegundum sem skoðaðar voru sérstaklega sýndu 12 tegundir marktæka fækkun á rannsóknartímabilinu, en aðeins ein tegund fjölgaði marktækt. Þá kom í ljós að margar tegundir sveifluðust í takt, sérstaklega þær sem voru algengar á sömu svæðum í vatninu. Það bendir til þess að sameiginlegir umhverfisþættir hafi áhrif á stofnstærðir þeirra. 

Sérstaka athygli vakti tegundin slæðumý, Tanytarsus gracilentus, sem talin er gegna mikilvægu hlutverki í vistkerfi vatnsins þar sem lirfurnar byggja göng í botnsetinu sem geta haft áhrif á lífríki og frumframleiðni vatnsins. Önnur algeng tegund, Cricotopus sylvestris , tengdist hins vegar einkum staðbundnum mun á tegundasamsetningu milli svæða í vatninu og meðfram Laxá.

Höfundar segja niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi langtímavöktunar því langar og samfelldar gagnaraðir geti varpað ljósi á samspil tegunda og umhverfis sem erfitt sé að greina með skemmri rannsóknum.

Aðalhöfundur greinarinnar er Árni Einarsson líffræðingur, fyrrum forstöðumaður Náttúrurannsóknastöðvarinnar á Mývatni. Meðal annarra höfunda er Þóra Hrafnsdóttir, vatnalíffræðingur hjá Náttúrufræðistofnun.

Einarsson, Á., Hannesdóttir, E. R., Gíslason, G. M., Halldórsdóttir, K., Hrafnsdóttir, Þ., Ólafsson, J. S., & Ives, A. R. (2026). The population dynamics of chironomid midges in Lake Mývatn, Iceland. Aquatic Ecology 60, 58. https://doi.org/10.1007/s10452-026-10294-2