Málþing um íslenska refinn
Málþing um íslenska refinn verður haldið þriðjudaginn 9. júní 2026 kl. 13 í Eddu, húsi íslenskunnar. Fundinum verður jafnframt streymt á netinu.
Á málþinginu verður fjallað um fjölbreytta þætti í líffræði og vöktun íslenska refastofnsins. Meðal annars verður rætt um sérstöðu stofnsins, vöktun hans, erfðafræði og svipgerðir, breytingar á fæðuvali með hlýnandi loftslagi, afræningjatengsl og nýtt stofnlíkan. Einnig verður fjallað um refaveiðar og veiðigögn, sem og þátttöku refaskyttna í vöktun. Að loknum fyrirlestrum fara fram pallborðsumræður.
Fundarstjóri er Sunna Björk Ragnarsdóttir, sviðsstjóri hjá Náttúrufræðistofnun.
Málþingið er öllum opið og aðgangur ókeypis.
Dagskrá: