Skip to main content
search

Ný rannsókn varpar ljósi á sveppi í andrúmslofti á norðurslóðum

Ný grein sem birtist í tímaritinu Aerobiologia fjallar um sveppi sem berast með lofti á norðurslóðum. Um er að ræða örsmá sveppagró sem ekki sjást með berum augum en geta haft áhrif á vistkerfi, loftslag, heilsu fólks og jafnvel mannvirki. Rannsóknin er sérstaklega mikilvæg í ljósi þess að norðurslóðir hlýna hratt og aukin umsvif manna geta haft áhrif á samsetningu og dreifingu lífvera í andrúmsloftinu.

Í greininni kemur fram að sveppir í lofti á þessum slóðum eru enn lítt rannsakaðir, þrátt fyrir mikilvægt hlutverk þeirra í náttúrunni. Þeir taka þátt í niðurbroti lífræns efnis við lágt hitastig, geta borist langar leiðir með vindum og hafa meðal annars áhrif á myndun skýja. Jafnframt geta sumir sveppir haft áhrif á heilsu fólks, til dæmis vegna ofnæmis eða öndunarfærasjúkdóma, og aðrir geta valdið skemmdum á byggingarefni.

Greinin tengist Íslandi sérstaklega þar sem kynntar eru niðurstöður loftsýnatöku í Eyjafirði í apríl 2025. Sýni voru tekin bæði í þéttbýli og dreifbýli í nágrenni Akureyrar. Alls fundust 20 sveppahópar í sýnunum og sýndu mælingar að styrkur sveppa var hærri í þéttbýli en dreifbýli. Þetta bendir til þess að byggð, mannleg umsvif og staðbundið umhverfi geti haft áhrif á samsetningu sveppa í lofti á Íslandi.

Rannsóknin undirstrikar mikilvægi þess að byggja upp frekari vöktun á sveppum í lofti á Íslandi og öðrum norðurslóðum. Slík vöktun getur hjálpað til við að meta áhrif loftslagsbreytinga, breyttrar landnotkunar og aukinna umsvifa manna á lífríki og heilsu í köldum vistkerfum.

Meðal höfunda greinarinnar eru Ewa Maria Przedpełska-Wasowicz sérfræðingur í loftlíffræði og Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir sveppafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun.

Pusz, W., Patejuk, K., Lipiński, M., Przedpelska-Wąsowicz, E., og Eyjólfsdóttir, G. G. (2026). Impact of climate change and anthropogenic pressure on the diversity and roles of Arctic airborne fungi. Aerobiologia, 42, 25. https://doi.org/10.1007/s10453-026-09911-2