Skip to main content
search

Nýtt stofnmat fyrir íslenska refastofninn

Nýtt stofnmat Náttúrufræðistofnunar bendir til þess að fullorðnum refum hafi fækkað á tímabilinu 2011–2024. Samkvæmt matinu voru um 4.700 fullorðin dýr í íslenska refastofninum vorið 2024, en vorið 2011 var stofninn metinn um 7.800 dýr.

Í nýja stofnmatinu er stofnstærð metin að vori, þ.e. fjöldi kynþroska einstaklinga í upphafi tímgunar. Það er breyting frá eldra mati, þar sem stofnstærð var metin að haustlagi og yrðlingar sem fæddust sama sumar voru taldir með.

Stofnlíkanið byggir á veiðigögnum, krufningum og aldursgreiningum innsendra refahræja frá tímabilinu 2011–2024. Niðurstöðurnar verða kynntar nánar á málþingi um íslenska refinn sem fram fer 9. júní 2026.

Fréttatilkynning Náttúrufræðistofnunar