Skip to main content
search

Rykmýslirfur gegna mikilvægu hlutverki í vistkerfi Mývatns

Ný vísindagrein sem birtist í tímaritinu Aquatic Ecology fjallar um mikilvægt hlutverk rykmýslirfa í vistkerfi Mývatns. Rannsóknin sýnir að lirfur slæðumýs, Tanytarsus gracilentus, hafa veruleg áhrif á frumframleiðni á botni vatnsins með því að breyta sjálfu botnlaginu og skapa hagstæð skilyrði fyrir vöxt örþörunga.

Lirfurnar byggja smáar pípur í botnsetinu sem styrkja yfirborð botnsins og mynda þrívíða byggingu þar sem örþörungar geta vaxið. Með þessu virka lirfurnar sem nokkurs konar vistkerfisverkfræðingar, það er lífverur sem breyta umhverfi sínu á þann hátt að það hefur áhrif á aðrar lífverur og starfsemi vistkerfisins í heild.

Rannsóknin byggir á 13 ára gagnaröð þar sem fylgst var með náttúrulegum sveiflum í fjölda slæðumýslirfa í Mývatni. Niðurstöðurnar sýna að þegar lirfur voru margar jókst frumframleiðni á botni vatnsins. Á sama tíma dró mikil framleiðsla svifþörunga úr frumframleiðni botnsins, líklega vegna samkeppni um ljós.

Í rannsókninni voru jafnframt greind gögn úr tilraunum þar sem bæði birtuskilyrðum og viðurvist lirfa var stjórnað. Þær niðurstöður bentu til þess að pípur lirfanna geti dregið úr áhrifum ljósskorts á botninum.

Árni Einarsson líffræðingur, fyrrum forstöðumaður Náttúrurannsóknastöðvarinnar á Mývatni, er meðal höfunda greinarinnar.

Ives, A. R., McCormick, A. R., Phillips, J. S., Book, K. R., Adler, E. L., Botsch, J. C., og Einarsson, Á. (2026). Ecosystem engineering by primary consumers increases long-term benthic primary production in Lake Mývatn, Iceland. Aquatic Ecology, 60(2), 53. https://doi.org/10.1007/s10452-026-10280-8