Skip to main content
search

Landnám barkarbjöllu á Íslandi staðfest

Ný vísindagrein í tímaritinu Icelandic Agricultural and Environmental Sciences staðfestir í fyrsta sinn að barkarbjalla hafi numið land og fjölgað sér með góðum árangri í íslenskri náttúru. 

Rannsókn þeirra Brynju Hrafnkelsdóttur, Þórhildar Ísberg og Matthíasar S. Alfreðssonar, skordýrafræðings á Náttúrufræðistofnun, sýnir að barkarbjallan Hylastes cunicularius hefur fest rætur á höfuðborgarsvæðinu. Tegundin fannst á fjórum skógarsvæðum og DNA-greining staðfesti tegundina.

Barkarbjöllur eru í hópi alvarlegustu skaðvalda í skógarvistkerfum heimsins. Þær geta valdið tjóni á barrtrjám auk þess sem sumar tegundir bera með sér sveppi sem geta haft áhrif á heilbrigði trjáa. Höfundar leggja því til áframhaldandi vöktun til að fylgjast með stofnvexti, útbreiðslu og mögulegri áhættu fyrir íslenska skóga.

Hrafnkelsdóttir, B., Th. Isberg and M. Alfreðsson. (2026). First record of the bark beetle Hylastes cunicularius Erichson, 1836 (Coleoptera: Curculionidae: Scolytinae) reproducing successfully in Iceland. Icelandic Agricultural Sciences 39: 49-56. https://doi.org/10.16886/IAS.2026.04