Ný rannsókn varpar ljósi á framvindu jökulhlaupa
Ný grein í tímaritinu Jökli varpar ljósi á myndun og framvindu jökulhlaupa undir íslenskum jöklum. Niðurstöðurnar benda til þess að hitastig jökulhlaupsvatns geti verið mjög breytilegt og haft mikil áhrif á þróun hlaupanna.
Rannsóknin byggir á samanburði á hæðarlíkönum sem unnin voru út frá lidar-mælingum fyrir og eftir tvö jökulhlaup. Annars vegar er um að ræða hlaupið í Múlakvísl undan Mýrdalsjökli árið 2011 sem eyðilagði brú á hringveginum og hins vegar jökulhlaup úr Vestari-Jökulsá undan Hofsjökli árið 2013.
Með því að bera saman mælingar fyrir og eftir jökulhlaup var hægt að greina breytingar á yfirborði jöklanna og fá upplýsingar um vatnsrennsli undir ísnum. Mælingarnar sýna meðal annars hlýtt jökulhlaupsvatn getur brætt ísinn neðan frá á leið sinni undan jöklinum. Rannsóknin sýnir jafnframt að hitastig jökulhlaupsvatns getur verið mjög breytilegt, allt frá því að vera nálægt frostmarki upp í tugi gráða. Höfundar telja að þessi breytileiki geti haft veruleg áhrif á framvindu jökulhlaupa og skýrt að hluta hvers vegna slík hlaup þróast með svo ólíkum hætti.
Meðal höfunda greinarinnar er Joaquín M.C. Belart, sérfræðingur fjarkönnunar hjá Náttúrufræðistofnun.
Jóhannesson, T., Belart, J. M. C., Magnússon, E., Sigurðsson, G., Stötter, J., Guðmundsson, M. T., Högnadóttir, Þ. og Dirscherl, M. (2025). Lidar measurements of jökulhlaup source areas on Mýrdalsjökull in 2011 and on Hofsjökull in 2013: Implications for jökulhlaup dynamics. Jökull, 75, 1–25. https://doi.org/10.33799/jokull2025.75.001