Skip to main content
search

Sérfræðingur í landfræðilegum greiningum og líkanagerð

Náttúrufræðistofnun auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings á sviði landfræðilegra greininga og líkanagerðar. Um er að ræða spennandi starf fyrir einstakling sem hefur áhuga á að vinna á mörkum landupplýsinga, gagnavinnslu og tæknilausna.

Helstu verkefni felast í landfræðilegum greiningum, líkanagerð, úrvinnslu gagna og þróun gagnainnviða og tæknilausna. Starfið felur jafnframt í sér þátttöku í rannsóknar- og þróunarverkefnum þar sem unnið er með fjölbreyttar aðferðir við að skapa og miðla landfræðilegum gögnum og þekkingu.

Leitað er að einstaklingi með háskólamenntun á sviði landupplýsinga, verkfræði, tölvunarfræði eða skyldra greina. Mikilvægt er að umsækjendur hafi góða þekkingu á landupplýsingavinnslu, greiningarhæfni og áhuga á nýsköpun og þróun. Reynsla af QGIS Python eða R, SQL og gagnagrunnum er meðal þeirra hæfniskrafna sem gerðar eru.

Náttúrufræðistofnun býður upp á skapandi og fjölbreytt vinnuumhverfi þar sem unnið er með opinn hugbúnað og nýjustu lausnir á sviði landupplýsinga. Starfið veitir tækifæri til samstarfs við sérfræðinga á ólíkum sviðum og þátttöku í verkefnum sem styðja við rannsóknir, vöktun og upplýsta ákvarðanatöku um náttúru Íslands.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf síðla sumars. Umsóknarfrestur er til og með 2. júlí 2026.

Nánari upplýsingar um starfið og umsóknarleið er að finna á vef Náttúrufræðistofnunar og á Starfatorgi.