Gervitungl mæla árstíðabundna afkomu Hofsjökuls
Ný rannsókn, sem birt hefur verið í vísindatímaritinu Remote Sensing of Environment, sýnir að hægt er að fylgjast með árstíðabundinni afkomu Hofsjökuls með gervitunglum. Með því skapast nýir möguleikar til að vakta íslenska jökla, jafnvel þar sem vettvangsmælingar eru takmarkaðar.
Rannsóknin byggir á hæðarmælingum frá ICESat-2-gervitungli NASA, sem mælir hæð yfirborðs jarðar með leysigeislum. Endurteknar mælingar á 91 dags fresti voru notaðar til að meta hvernig yfirborð Hofsjökuls hækkaði yfir vetrarmánuðina vegna snjósöfnunar og lækkaði á sumrin vegna leysinga. Niðurstöðurnar voru bornar saman við bæði vettvangsmælingar og hæðarlíkön sem unnin eru út frá gervitunglamyndum og reyndust gott samræmi milli þessara mismunandi mælingaðferða.
Samkvæmt rannsókninni tapaði Hofsjökull að meðaltali 0,56 metrum vatnsgildis á ári á tímabilinu 2020–2024. Mest var sumarbráðnunin árið 2021 en jákvæðasta vetrarafkoman mældist árið 2022. Niðurstöðurnar sýna jafnframt að gervitunglamælingar geta veitt áreiðanlegar upplýsingar um árstíðabundnar breytingar á massa jökulsins og þannig verið mikilvæg viðbót við hefðbundnar vettvangsmælingar.
Rannsóknin er afrakstur alþjóðlegs samstarfs vísindamanna frá háskólum og rannsóknastofnunum í Bandaríkjunum, á Íslandi og í Frakklandi, meðal annars Náttúrufræðistofnun og Veðurstofu Íslands.
Greinin er aðgengilega á netinu:
Koo, Y., Xie, H., Belart, J. M. C., Thorsteinsson, T., Jóhannesson, T., Berthier, E., & Guyez, A. (2026). Seasonal mass balance of Hofsjökull ice cap, Iceland, estimated from repeat ICESat-2 satellite altimetry. Remote Sensing of Environment, 344, 115555. https://doi.org/10.1016/j.rse.2026.115555