Hornsíli gegnir lykilhlutverki í vistkerfi Mývatns
Ný yfirlitsgrein, sem birt hefur verið í vísindatímaritinu Aquatic Ecology, dregur saman áratuga rannsóknir á hornsíli, Gasterosteus aculeatus, í Mývatni og sýnir hvernig þessi smái fiskur gegnir lykilhlutverki í einu best rannsakaða stöðuvatni heims. Greinin sýnir jafnframt hvernig rannsóknir á hornsíli hafa aukið skilning á samspili vistfræðilegra og þróunarfræðilegra ferla í náttúrunni.
Mývatn er einstakt rannsóknarsvæði þar sem fylgst hefur verið með breytingum á lífríkinu í áratugi. Þar sveiflast stofnstærðir margra lífvera reglulega og hornsílið bregst hratt við þessum breytingum. Það er mikilvæg fæða fyrir fiska og fugla, nærist sjálft á smádýrum og er hýsill ýmissa sníkjudýra. Því hefur það áhrif á marga þætti vistkerfisins og tengir saman ólík stig fæðuvefsins.
Í greininni er jafnframt fjallað um þann fjölbreytileika sem finnst innan hornsílisstofnsins í Mývatni. Rannsóknir hafa sýnt að einstaklingar geta verið ólíkir að byggingu, erfðasamsetningu og fæðuvali og að þessir eiginleikar geta breyst á tiltölulega skömmum tíma þegar umhverfið breytist. Því varpar hornsílið ljósi á hvernig lífverur aðlagast breyttum aðstæðum og hvernig slík þróun getur jafnframt haft áhrif á vistkerfi.
Greinin byggir á niðurstöðum fjölmargra rannsókna sem unnar hafa verið við Mývatn og undirstrikar mikilvægi langtímavöktunar fyrir skilning á virkni vistkerfa og viðbrögðum þeirra við náttúrulegum sveiflum og umhverfisbreytingum.
Meðal höfunda greinarinnar er Árni Einarsson, fyrrum forstöðumaður Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn.
Greinina má nálgast á netinu:
Bjarni K. Kristjánsson, Árni Einarsson, Ásgrímur Guðmundsson, Joseph Phillips, Kasha Strickland, Alexandra Schnider, Ragna Guðrún Snorradóttir, Skúli Skúlason, Blake Matthews, Zophonías O. Jónsson, Anthony R. Ives, Anssi Karvonen, A. og Katja Räsänen. (2026). The threespine stickleback: A diverse key species for the Lake Mývatn ecosystem. Aquatic Ecology, 60, 71. https://doi.org/10.1007/s10452-026-10307-0