Náttúrufræðistofnun verður sendiherra Copernicus
Náttúrufræðistofnun hefur verið samþykkt sem sendiherra Copernicus og er þar með fyrsta stofnunin á Íslandi sem hlýtur þá viðurkenningu innan EU Space Networks.
Hlutverk sendiherra Copernicus er að efla notkun gagna, upplýsinga og þjónustu Copernicus á Íslandi og gera þau aðgengilegri fyrir rannsakendur, opinbera aðila, menntastofnanir, fyrirtæki og aðra notendur.
Copernicus-áætlunin er hluti af geimáætlun Evrópusambandsins og veitir opinn aðgang að gögnum og þjónustu sem byggja á mælingum frá gervitunglum og athugunum á landi, í lofti og á sjó. Gögnin eru meðal annars nýtt til vöktunar umhverfis og náttúru, loftslagsrannsókna, landupplýsinga, viðbragða við náttúruvá og sjálfbærrar nýtingar náttúruauðlinda.
Sem sendiherra Copernicus mun Náttúrufræðistofnun kynna þau gögn og þá þjónustu sem í boði eru, aðstoða notendur við að finna viðeigandi upplýsingar og styðja stofnanir og fyrirtæki sem vilja nýta fjarkönnunargögn í starfsemi sinni.
Náttúrufræðistofnun er nú þegar fulltrúi Íslands í Copernicus User Forum og Copernicus Committee, þar sem unnið er að þróun Copernicus-áætlunarinnar og fjallað um þarfir notenda.
Þeir sem vilja fá frekari upplýsingar eða ráðgjöf um Copernicus á Íslandi geta haft samband við Náttúrufræðistofnun.
Upplýsingar um EU Space Networks
Aðrar stofnanir og háskólar á Íslandi geta einnig sótt um að gerast þátttakendur í EU Space Networks