Skip to main content
search

Ný aðferð til að greina fæðu rjúpunnar

Rannsókn sem birtist í sumar í tímaritinu Journal of Chemical Ecology sýnir að innrauð litrófsgreining (FTIR) getur nýst vel til að greina hvaða plöntur og plöntuhluta rjúpur éta. Aðferðin gerir kleift að greina, ekki aðeins á milli plöntutegunda, heldur einnig mismunandi plöntuhluta, svo sem laufblaða og berja, sem geta verið mjög ólík að næringargildi.

Rannsóknin byggðist á greiningu á fæðuleifum úr 236 rjúpum sem safnað var á Íslandi á níu ára tímabili. Fæðan var flokkuð í mismunandi plöntutegundir og plöntuhluta og síðan greind með innrauðri litrófsgreiningu. Niðurstöðurnar sýndu að hver plöntutegund og hver plöntuhluti hefur sitt sérstaka efnafræðilega „fingrafar“ sem hægt er að greina með mikilli nákvæmni.

Aðferðin reyndist sérstaklega árangursrík við að greina á milli plöntuhluta og skilaði réttri flokkun í tæplega 97% tilvika. Hún getur því veitt nýja innsýn í fæðuval grasbíta og tengsl næringargildis fæðu við stofnstærð og afkomu dýra.

Höfundar benda á að aðferðin geti orðið mikilvæg viðbót við erfðafræðilegar aðferðir við rannsóknir á fæðu villtra dýra. Með frekari þróun gæti hún orðið öflugt rannsóknartæki við rannsóknir á fæðuvali og vistfræði grasbíta.

Ólafur Karl Nielsen fuglafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun er meðal höfunda greinarinnar.

Schäfer, M., Zohmann-Neuberger, M., Forbey, J. S., Tintner-Olifiers, J., Hromatka, A., Inselsbacher, E., Dépré, C., Nielsen, Ó. K. og Nopp-Mayr, U. (2026). The use of FTIR spectra for classifying plant items in a vertebrate herbivore's diet. Journal of Chemical Ecology, 52, 41. https://doi.org/10.1007/s10886-026-01716-4