Skip to main content
search

Ný rannsókn varpar nýju ljósi á Nautárdalsjökul

Ný rannsókn sem birt hefur verið í vísindaritinu Catena varpar nýju ljósi á uppruna og þróun Nautárdalsjökuls á Tröllaskaga. Niðurstöðurnar benda til þess að jökullinn sé ekki grjótjökull eins og áður var talið heldur urðarkápujökull, þar sem þykkur ískjarni er hulinn urð og jökulruðningi.

Til að varpa ljósi á þróun jökulsins voru notaðar þrjár ólíkar aðferðir til að aldursgreina stórgrýti í urðarkápu hans: aldursgreining með geislamælingum (36Cl), Schmidt-hamarspróf og fléttugreining. Jafnframt var hreyfing yfirborðsins rakin með ljósmyndamælingum sem byggðu á samanburði loftmynda frá árunum 1994–2021 og landform kortlögð.

Aldursgreiningarnar sýna að urðarkápan hefur byggst upp í að minnsta kosti þremur framgönguskeiðum jökla á síðustu árþúsundum, fyrir um 3.600–2.400 árum, um 1.100–900 árum og á litlu ísöld. Mælingarnar sýna jafnframt að yfirborð jökulsins hreyfist enn um 20–25 cm á ári en hefur sigið verulega á síðustu áratugum vegna bráðnunar ískjarnans og myndunar sigdælda.

Greinin er aðgengileg á netinu. Meðal höfunda er Skafti Brynjólfsson, jarðfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun.

Tanarro, L. M., Palacios, D., Fernández-Fernández, J. M., Santos-González, J., González-Gutiérrez, R. B., Andrés, N., Schimmelpfennig, I., Farnsworth, W. R., Melón-Nava, A., Peña-Perez, S., Brynjólfsson, S., Sæmundsson, Þ., & A.S.T.E.R. Team. (2026). Unveiling the evolution of a glacier through geomorphological analysis and surface exposure dating: Nautárdalsjökull (Northern Iceland). Catena, 268, 109981. https://doi.org/10.1016/j.catena.2026.109981