Rjúpnatalningar 2026
Rjúpnatalningum á vegum Náttúrufræðistofnunar vorið 2026 er lokið. Rjúpur voru taldar á 21 talningarsniði í öllum landshlutum og sýna niðurstöðurnar nokkrar breytingar á fjölda rjúpna samanborið við árið 2025.
Áberandi aukning varð í fjölda rjúpna á Suðurlandi, Norðurlandi vestra, Norðausturlandi og Austurlandi. Á Vestfjörðum og Vesturlandi var fjöldinn hins vegar svipaður og síðustu ár. Á nokkrum talningarsniðum mældist mesti fjöldi rjúpna frá upphafi talninga, meðal annars í Dölunum á Vesturlandi, á Skaga á Norðurlandi vestra og á Bakkafirði, Tjörnesi og í Kelduhverfi á Norðausturlandi.
Í heildina sáust um 7% fleiri rjúpur en árið áður. Miðað við stofnvísitölur síðustu 20 ára er rjúpnastofninn við meðaltal á Vestur- og Suðurlandi en yfir meðaltali á Norðurlandi vestra, Vestfjörðum, Norðausturlandi og Austurlandi. Líklegt er að mikill þéttleiki rjúpna á sumum svæðum tengist fækkun fálka.
Langtímagögn úr vöktuninni benda til þess að stofnsveiflur rjúpunnar hafi breyst frá því sem áður var. Þótt hefðbundin stofnsveifla hafi áður verið 10–12 ár hefur þróunin frá árinu 2003 verið óreglulegri og mismunandi milli landshluta.