Skip to main content
search

Jákvæðar niðurstöður úr vöktun moskítóflugna í Ölfusi

Nýjustu niðurstöður úr vöktun moskítóflugna í hesthúsi í Ölfusi eru jákvæðar. Við síðustu sýnatöku fundust þar engar moskítóflugur, í fyrsta sinn frá því þær fundust í hesthúsinu haustið 2025. Vöktun verður þó haldið áfram, bæði inni í hesthúsinu og í nágrenni þess, til að fylgjast með hvort flugurnar komi aftur fram.

Frá því moskítóflugurnar fundust í hesthúsinu í lok október 2025 hefur markvisst verið unnið að því að draga úr stofninum. Beitt hefur verið fjölbreyttum aðferðum. Flugum hefur verið safnað handvirkt, með sérstakri moskítóryksugu og með gildrum af gerðinni BG-Sentinel, sem seyta frá sér koltvísýringi og lyktarefni sem laða flugurnar að. Jafnframt voru uppeldisstöðvar flugnanna meðhöndlaðar með sílikonefni sem myndar himnu á vatnsyfirborði og hindrar að lirfur og púpur nái í súrefni.

Nauðsynlegt er að fylgjast með þróuninni yfir lengri tíma áður en hægt verður að meta með vissu hvort aðgerðirnar hafi skilað varanlegum árangri. Vöktun verður því haldið áfram á svæðinu.

Þótt niðurstöðurnar úr Ölfusi séu jákvæðar heldur vöktun moskítóflugna einnig áfram á fleiri svæðum. Á næstu mánuðum verður aukin áhersla lögð á rannsóknir í Kjós, þar sem moskítófluga af ættkvíslinni Culiseta fannst haustið 2025. Þar verða gildrur notaðar til að fanga fullorðnar flugur auk þess að leitað verður að lirfum og púpum á mögulegum uppeldissvæðum.

Samhliða vöktuninni hafa Náttúrufræðistofnun borist fjölmargar ábendingar frá almenningi um meintar moskítóflugur víðs vegar um landið. Í öllum tilvikum hefur reynst vera um aðrar tegundir flugna að ræða. Ábendingar almennings eru afar mikilvægar og stuðla að því að hægt sé að bregðast hratt við ef moskítóflugur finnast á ný eða á nýjum stöðum.

Náttúrufræðistofnun hvetur fólk sem telur sig hafa fundið moskítóflugu til að senda stofnunni ljósmynd, ábendingar eða eintak ásamt upplýsingum um fundarstað og fundardag. Slíkar tilkynningar eru mikilvægur þáttur í vöktun nýrra tegunda á Íslandi.