Skip to main content
search

Nafnasamkeppni: Hvað á LIFE Icewater að heita á íslensku?

Leitað er að góðu íslensku heiti fyrir LIFE Icewater, umfangsmikið samstarfsverkefni sem Náttúrufræðistofnun tekur þátt í. Öllum er velkomið að senda inn tillögu og stendur nafnasamkeppnin yfir til miðnættis 30. ágúst.

LIFE Icewater styður við framkvæmd vatnaáætlunar á Íslandi og nær til fjölbreyttra viðfangsefna á sviði vatnamála. Meðal annars er unnið að vöktun og aukinni þekkingu á ástandi vatns, vernd og endurheimt vatnavistkerfa, sjálfbærri nýtingu vatns, bættri fráveitu og minni mengun. Verkefnið miðar einnig að því að efla stjórnsýslu, samstarf, fræðslu og miðlun um vatnamál.

Nú er leitað að íslensku heiti sem nær vel utan um verkefnið, er lipurt og eftirminnilegt og hentar vel til miðlunar. Hver þátttakandi má senda inn fleiri en eina tillögu en stuttur rökstuðningur þarf að fylgja hverri þeirra.

Að samkeppninni lokinni fer valnefnd yfir tillögurnar án upplýsinga um þátttakendur. 

Sigurhugmyndin verður verðlaunuð með gjafabréfi í Reykjaböð í Hveragerði.

Taktu þátt og sendu inn tillögu

Nánari upplýsingar um nafnasamkeppnina á vef LIFE Icewater