Skip to main content
search

Berghrun sem myndaði dyrnar í Dyrfjöllum hafði áhrif á þróun Dyrajökuls

Út eru komnar tvær vísindagreinar sem fjalla um samspil berghlaupa og jökla í Jökuldal við Dyrfjöll á Austurlandi. Greinarnar varpa ljósi á hvernig stórt berghrun, sem myndaði dyrnar í Dyrfjöllum, hafði áhrif á þróun Dyrajökuls og mótun landslags í Jökuldal.

Í annarri greininni, sem birtist í Scientific Reports, er fjallað um aldur berghrunsins og áhrif þess á Dyrajökul. Með kosmógenískum aldursgreiningum á bergi tókst rannsakendum að sýna fram á að berghrunið varð snemma á nútíma, fyrir um 9.400 árum. Skriðan féll úr Dyrfjöllum, reif stóran hluta fjallshryggjarins burt og myndaði Dyraskarð, eitt þekktasta kennileiti Dyrfjalla. Á austurhliðinni rann skriðan yfir Dyrajökul og huldi hann grjóti sem einangraði ísinn og dró úr bráðnun hans. Það varð til þess að jökullinn gekk fram á tímabili þegar loftslag var hlýrra en síðar varð og flestir jöklar á Íslandi voru á undanhaldi.

Í hinni greininni, sem birtist í Journal of Maps, er sett fram ítarlegt landmótunarkort af Jökuldal. Markmið kortlagningarinnar var að greina á milli berghlaupsurða og öldóttra jökulgarða, en þessi jarðfræðifyrirbæri geta verið lík í landslagi þótt uppruni þeirra sé ólíkur. Kortlagningin byggði meðal annars á túlkun loftmynda, vettvangsathugunum, myndmælingum, drónamyndum og stafrænni kortavinnslu. Niðurstöðurnar sýna að í kjölfar eins eða mögulega fleiri berghlaupa niður í Jökuldal gengu jöklar fram að minnsta kosti sex sinnum og mynduðu jökulgarða sem liggja að hluta ofan á eldri berghlaupsurð.

Saman sýna rannsóknirnar að framrás jökla endurspeglar ekki alltaf eingöngu breytingar í loftslagi. Stór berghlaup geta haft afgerandi áhrif á þróun jökla, meðal annars með því að hylja ísinn, einangra hann og draga úr bráðnun. Því er mikilvægt að greina vel á milli ummerkja eftir berghlaup og jökulgarða þegar saga jökla og loftslags er rakin.

Birgir Vilhelm Óskarsson, jarðfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, er einn af höfundum beggja greinanna. Rannsóknahópurinn nýtti meðal annars jarðfræðigögn og þekkingu Náttúrufræðistofnunar á Dyrfjöllum og Borgarfirði eystri við túlkun á myndun landslags og jarðfræðilegum aðstæðum á rannsóknarsvæðinu. 

 

Greinarnar:

Andrés, N., Palacios, D., Fernández-Fernández, J. M., Sæmundsson, Þ., Schimmelpfennig, I., Tanarro, L. M., Burchardt, S., Óskarsson, B. V., Oliva, M., Zamorano, J. J., Quijada, I., Melón-Nava, A., Aumaître, G., Zaidi, F., & Keddadouche, K. (2026). Rock-avalanche-driven glacier advances in a volcanic mountain revealed by cosmogenic exposure dating. Scientific Reports. https://doi.org/10.1038/s41598-026-61102-8   

Quijada, I., Zamorano, J.J., Tanarro, L.M., Palacios, D., Fernández-Fernández, J.M., Sæmundsson, Þ., Andrés, N., González-Gutiérrez, R.B., Burchardt, S., Óskarsson, B.V. (2026). Rock avalanche–glacier interactions and moraine-system development in Jökuldalur, Dyrfjöll, Eastern Iceland. Journal of Maps 22(1). https://doi.org/10.1080/17445647.2026.2727525