Skip to main content
search

Dagur íslenskrar náttúru

Í dag, 16. september, er dagur íslenskrar náttúru. Dagurinn er haldinn hátíðlegur ár hvert og eru einstaklingar, skólar, stofnanir, fyrirtæki og félagasamtök hvött til að hafa íslenska náttúru í huga í starfsemi sinni.

Fátt hefur mótað íslensku þjóðina eins og náttúran. Íslendingar hafa lagað líf sitt að samspili elds og ísa, dyntóttu veðri og kröftugum sjávarföllum. Um leið höfum við notið alltumlykjandi náttúrufegurðar og haft lífsviðurværi okkar af ríkulegum gjöfum náttúrunnar.

Náttúrufræðistofnun rannsakar náttúru Íslands, skráir hana og kortleggur og fylgist með breytingum sem verða á henni. Rannsóknirnar ná meðal annars til jarðfræði, gróðurs, dýralífs og vistkerfa. Stofnunin safnar einnig og miðlar landfræðilegum grunnupplýsingum um landið, svo sem um yfirborð þess, vatnafar og örnefni. Starfið leggur grunn að vernd náttúrunnar, sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda og upplýstum ákvörðunum um land og náttúru.

Í tilefni dagsins birtir Náttúrufræðistofnun myndband sem sýnir lítið brot af fjölbreyttri náttúru Íslands.

Dagur íslenskrar náttúru er gott tilefni til að staldra við, horfa í kringum sig og njóta náttúrunnar.