Skip to main content
search

Elín Gunnlaugsdóttir grasafræðingur látin

Elín Gunnlaugsdóttir, grasafræðingur, sem starfaði hjá Náttúrufræðistofnun Norðurlands og Náttúrufræðistofnun Íslands, er látin, 79 ára að aldri.

Elín fæddist 4. júlí 1947. Hún lauk B.S.-prófi í líffræði frá Háskóla Íslands árið 1972 og framhaldsnámi í grasafræði árið 1974. Hún stundaði síðan doktorsnám í plöntuvistfræði og plöntufélagsfræði við Uppsalaháskóla og lauk doktorsprófi þaðan árið 1985. Doktorsrannsókn hennar fjallaði um tegundasamsetningu íslensks heiðagróðurs og breytingar á honum, meðal annars í tengslum við uppblástur og uppgræðslu.

Elín starfaði um langt skeið að gróðurrannsóknum á Norðurlandi. Hún vann meðal annars hjá Náttúrugripasafninu á Akureyri og síðar hjá Náttúrufræðistofnun Norðurlands og Náttúrufræðistofnun Íslands, auk þess að starfa sem grasafræðingur við Lystigarð Akureyrar. Hún rannsakaði gróðursamfélög, einkum við Eyjafjörð, og var meðal helstu sérfræðinga landsins á sviði plöntufélagsfræði. Doktorsritgerð hennar og aðrar rannsóknir hafa haldið gildi sínu og munu áfram nýtast við rannsóknir á íslenskum gróðri.

Elín var fróð, hjálpsöm og hreinskilin og þannig minnast samstarfsfélagar hennar. Náttúrufræðistofnun vottar fjölskyldu hennar og aðstandendum innilega samúð.