Evrópskt samstarf um sjálfvirkar frjómælingar
Um 38 sérfræðingar frá fjölmörgum Evrópulöndum komu saman á árlegum fundi verkefnisins AutoPollen í Norræna húsinu í Reykjavík dagana 21.–22. september. Verkefnið miðar að því að byggja upp samræmt kerfi sjálfvirkra mælinga á frjókornum og sveppagróum í lofti og bæta aðgengi að upplýsingum um magn þeirra hverju sinni.
Markmiðið er að mæligögn nýtist bæði almenningi og heilbrigðisyfirvöldum. Náttúrufræðistofnun tekur þátt í verkefninu og rekur tvö sjálfvirk frjómælingatæki, annað á Akureyri og hitt á höfuðborgarsvæðinu.
Á fundinum var farið yfir stöðu verkefnisins og næstu skref í þróun sjálfvirkra frjómælinga. Meðal umræðuefna voru starf vinnuhópa og vottun mælistöðva. Náttúrufræðistofnun sá um skipulagningu fundarins í samstarfi við stjórnendur verkefnisins.
Í tengslum við AutoPollen-fundinn var einnig haldinn fundur Norræna frjónetsins, sem nýlega hefur verið endurvakið. Þar var rætt um samstarf Norðurlandanna um frjómælingar og frjóspár. Meðal fyrirhugaðra verkefna er að taka saman yfirlit yfir sérfræðinga, samstarfsnet og mælibúnað á Norðurlöndum. Einnig er stefnt að því að þróa sameiginlegan gagnagrunn um árstíðabundna þróun plantna og efla miðlun gagna úr hefðbundnum frjómælingum. Þá eru áform um að koma upp safni frjókorna sem nýta má til að þjálfa sjálfvirk kerfi í að greina frjókorn og til DNA-rannsókna.
Ewa Maria Przedpelska-Wasowicz, loftlíffræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, situr í ráðgjafar- og stýrihópi Norræna frjónetsins og tekur þátt í að móta áframhaldandi samstarf Norðurlandanna.