Skip to main content
search

Lífríki votlendis í nærmynd á Vísindavöku

Náttúrufræðistofnun og Landbúnaðarháskóli Íslands stóðu saman að sýningu á Vísindavöku í Laugardalshöll laugardaginn 26. september. Þar var Mýralíf, samstarfsverkefni sjö stofnana og félagasamtaka, kynnt og gestum boðið að kynnast lífríki votlendis. Verkefnið er að mestu fjármagnað af LIFE-sjóðnum, sem er hluti af umhverfis- og loftslagsáætlun Evrópusambandsins.

Á sýningunni mátti meðal annars fylgjast með lifandi hornsílum í fiskabúri og skoða votlendisgróður og þurrkaðan mó. Sérstaklega voru kynntar fuglategundirnar jaðrakan, lóuþræll og stelkur, sem eru í brennidepli í Mýralífi. Gestir á öllum aldri skoðuðu sýnin og ræddu við starfsfólk um lífríkið og rannsóknir á því. 
Yngstu gestirnir gátu sest niður og lagt púsl með myndum af fuglategundunum þremur og votlendisplöntunni sóldögg. Einnig var hægt að fá sér tímabundin tattoo með myndum af fuglunum. 

Áætlað er að rúmlega 7.000 gestir hafi heimsótt Vísindavöku í ár. Margt var um manninn á bás Náttúrufræðistofnunar og Landbúnaðarháskóla Íslands og starfsfólk átti fjölmörg samtöl gesti. Náttúrufræðistofnun þakkar gestum fyrir komuna.