Skip to main content
search

Ofnæmisvaldandi prótein í frjókornum birkis og fjalldrapa rannsökuð

Ný rannsókn sem birt hefur verið í vísindatímaritinu Scientific Reports varpar ljósi á efnasamsetningu frjókorna íslenskra birkitegunda og hvernig hún gæti tengst frjókornaofnæmi. 

Í rannsókninni voru frjókorn af birki (Betula pubescens) og fjalldrapa (B. nana) tekin á nokkrum stöðum á Norðurlandi og borin saman við frjókorn af hengibjörk (B. pendula) frá Póllandi. Meðal annars var próteinsamsetning frjókornanna rannsökuð og heildarmagn próteina mælt. Sérstök áhersla var lögð á Bet v 1, sem er helsta ofnæmisvaldandi próteinið í birkifrjókornum. 

Niðurstöðurnar sýndu skýran mun á tegundunum. Frjókorn fjalldrapa höfðu einfaldari próteinsamsetningu og innihéldu að meðaltali minna af próteinum í heild og af Bet v 1 en frjókorn ilmbjarkar og hengibjarkar. Þetta bendir til þess að frjókorn fjalldrapa geti síður stuðlað að myndun ofnæmis en frjókorn hinna tegundanna. Einnig kom fram töluverður munur milli sýnatökustaða á Íslandi, sem bendir til þess að staðbundnar umhverfisaðstæður geti haft áhrif á próteinsamsetningu frjókorna. 

Rannsóknin bendir til þess að fjöldi birkifrjókorna í lofti segi ekki alla söguna þegar meta á möguleg ofnæmisáhrif þeirra. Tegund birkis og lífefnafræðileg samsetning frjókorna geta einnig skipt máli. Þessi þekking gæti í framtíðinni hjálpað til við að túlka frjómælingar og meta betur hættu á ofnæmi á Íslandi og annars staðar á Norðurlöndum.

Rannsóknin er þó aðeins fyrsta skrefið. Ofnæmisvirkni frjókornanna var ekki prófuð beint á fólki eða með mótefnaprófum. Því er ekki hægt að fullyrða út frá rannsókninni einni að fjalldrapi valdi minna ofnæmi. Höfundar benda á að næsta skref sé að kanna ónæmissvörunina og tengja hana við mismunandi birkitegundir og umhverfisaðstæður. 

Rannsóknin var unnin í samstarfi íslenskra og pólskra vísindamanna. Ewa Maria Przedpełska-Wąsowicz hjá Náttúrufræðistofnun er meðal höfunda greinarinnar.

Myszkowska, D., Przedpelska-Wasowicz, E., Piotrowicz, K., Piotrowicz-Wójcik, K., Raj, P., Słomka, A., Stawoska, I., Wesełucha-Birczyńska, A., & Waga, J. (2026). Biochemical characterisation and protein profile of Icelandic birch pollen, as the potential sources of allergens. Scientific Reports. https://doi.org/10.1038/s41598-026-69759-x