Sprungur undir yfirborði í Grindavík kortlagðar með segulmælingum
Út er komin grein í vísindatímaritinu Geophysical Research Letters þar sem fjallað er um hvernig segulmælingar úr dróna og á jörðu niðri voru nýttar til að kortleggja sprungur og holrúm undir yfirborði í Grindavík á umbrotatímabilinu 2023–2025.
Við rannsóknina komu fram greinileg segulfrávik sem tengdust opnum eða hálfopnum sprungum og staðbundnum holrúmum. Með aðferðinni tókst meðal annars að greina sprungur sem lítil eða engin ummerki sáust um á yfirborði. Niðurstöðurnar voru staðfestar með vettvangsathugunum, LiDAR-gögnum um aflögun yfirborðs og uppgreftri á völdum stöðum.
Nokkur segulfrávikanna samsvöruðu eldri sprungum sem höfðu virkjast á ný og unnt var að greina á loftmyndum frá árinu 1954. Líkanreikningar sýndu að lögun og styrkur frávikanna samræmdust sprungum og holrúmum á um 10–20 metra dýpi eða grynnra.
Segulmælingarnar gerðu kleift að kortleggja á skömmum tíma helstu sprungukerfi á svæðum sem erfitt eða ómögulegt var að komast að. Þær sýndu jafnframt hvernig sprungurnar lágu og hversu opnar þær voru á mismunandi stöðum. Niðurstöðurnar nýttust við hættumat og neyðarviðbrögð í Grindavík.
Þetta er í fyrsta sinn sem segulmælingar úr dróna og á jörðu niðri eru nýttar saman til að kortleggja sprungur í þéttbýli því sem næst í rauntíma meðan á jarðhræringum stendur. Aðferðin gæti einnig nýst við hættumat og skjót viðbrögð á öðrum jarðfræðilega virkum svæðum þar sem segulmunur bergs og sprungna eða holrúma er nægilega mikill.
Robert A. Askew og Birgir Vilhelm Óskarsson, jarðfræðingar, og Syndey Gunnarsson, sérfræðingur fjarkönnunar, hjá Náttúrufræðistofnun eru meðal höfunda greinarinnar.
Greinin:
Piispa, E. J., Gallagher, C. R., Bernholt, S., Einarsson, G. M., Erlendsson, Ö., Karlsdóttir, K. Á., Sigurgeirsson, M. Á., Askew, R. A., Ben-Yehoshua, D., Óskarsson, B. V., Gunnarson, S. R., Gudmundsson, M. T., & Björnsson, G. (2026). Rapid UAV- and ground-based magnetic mapping of subsurface fractures during a volcano-tectonic crisis in Grindavík, Iceland. Geophysical Research Letters, 53(16), e2025GL121613. https://doi.org/10.1029/2025GL121613