Villt jarðarber á Norðurlöndum rannsökuð
Ný norræn rannsókn á villtum jarðarberjum, sem birtist í vísindatímaritinu Genetic Resources and Crop Evolution, sýnir að íslenskir stofnar búa yfir sérstæðri erfðafjölbreytni. Höfundar benda sérstaklega á stofn í Borgarfirði sem mikilvægt sé að varðveita utan náttúrulegra heimkynna, meðal annars til að auðvelda nýtingu hans við rannsóknir og kynbætur.
Í rannsókninni voru rannsakaðar 180 jarðaberjaplöntur (Fragaria vesca) úr tólf stofnum á Norðurlöndum, þar af þremur á Íslandi. Erfðafjölbreytni innan íslensku stofnanna var að jafnaði minni en í hinum löndunum. Þeir báru þó erfðabreytileika sem ekki fannst annars staðar í rannsókninni. Lítil fjölbreytni innan stofns þýðir því ekki að hann hafi lítið varðveislugildi.
Villtir ættingjar nytjaplantna geta búið yfir eiginleikum sem nýtast við kynbætur, til dæmis til að auka sjúkdómsþol eða aðlögun að breyttu loftslagi. Með því að varðveita ólíka jarðarberjastofna má tryggja aðgang að fjölbreyttu erfðaefni til framtíðar.
Jarðarber eru útbreidd á Norðurlöndum og höfundar telja ekki þörf á sérstökum viðbótarverndaraðgerðum í náttúrunni að svo stöddu. Varðveisla í söfnum utan náttúrulegra heimkynna gæti hins vegar bæði stutt rannsóknir og kynbætur og tryggt að erfðaefnið varðveitist.
Magnus Göransson plöntulíffræðingur hjá Náttúrufræðistofnun er meðal höfunda greinarinnar.
Dalling, M., Goodman, C., Bjureke, K., Fitzgerald, H., Göransson, M., Huseby, L. G., Lyytikäinen, V., Madsen, B., Moerenhout, R., Palmé, A., Thorbjörnsson, H., Treier, U. A., & Hagenblad, J. (2026). Genetic diversity within and among wild strawberry (Fragaria vesca) populations in the Nordic countries. Genetic Resources and Crop Evolution, 73, 287. https://doi.org/10.1007/s10722-026-02914-5