200.000 örnefni komin á kortið
Mikilvægum áfanga var náð í skráningu íslenskra örnefna þegar örnefni númer 200.000 var skráð í örnefnagrunn Náttúrufræðistofnunar. Það er Ljósavatnalækur í landi Herjólfsstaða í Skaftárhreppi. Að baki liggur viðamikið starf við að staðsetja örnefni og varðveita þekkingu á þeim. Framlag staðkunnugs fólks víðs vegar um landið hefur gegnt lykilhlutverki í þeirri vinnu.
Fyrsta formlega útgáfa örnefnagrunnsins kom út í desember 2001. Þá voru tæplega 43.000 örnefni hnitsett, ásamt um 20.000 mannvirkjapunktum. Síðan hefur grunnurinn stækkað jafnt og þétt og hefur nú að geyma 200.000 örnefni, auk tæplega 24.000 mannvirkjapunkta.
Frá stórum landsvæðum að einstökum steinum
Það sem gerir íslenska örnefnagrunninn einstakan er nákvæmni hans. Örnefnin eru skráð sem punktar, línur eða svæði eftir eðli þeirra og umfangi. Þannig er hægt að staðsetja allt frá stórum landsvæðum niður í einstaka steina, hóla eða lautir. Fá lönd hafa jafn ítarlega og nákvæma skráningu örnefna fyrir allt landið.
Stafræn kortagerð hefur gjörbreytt möguleikum á skráningu og miðlun örnefna. Á pappírskortum takmarkast fjöldi nafna sem hægt er að birta af mælikvarða kortsins og plássi. Með stafrænni kortagerð og gagnagrunnum er nú hægt að staðsetja og varðveita öll örnefni sem finna má í örnefnalýsingum Árnastofnunar og birta þau eftir því hversu mikið er þysjað inn á kortið.
Þekking heimafólks er undirstaðan
Árangurinn byggist að stórum hluta á framlagi almennings. Staðkunnugt fólk hefur merkt örnefni á loftmyndir, sent stofnuninni upplýsingar eða skráð þau sjálft í grunninn með sérhönnuðu veftóli. Með þessu samstarfi varðveitist þekking á örnefnum og staðsetningu þeirra sem annars gæti glatast.
Enn eru fjölmörg örnefni óstaðsett. Náttúrufræðistofnun hvetur fólk sem þekkir örnefni í heimahéraði sínu til að hafa samband og leggja sitt af mörkum við skráninguna. Örnefnin eru hluti af menningararfi þjóðarinnar og geta geymt upplýsingar um náttúrufar, landnýtingu og sögu fólksins sem bjó í landinu.