Skip to main content
search

Auglýst eftir sérfræðingi í vistgerðakortlagningu

Náttúrufræðistofnun leitar að sérfræðingi til að taka þátt í kortlagningu vistgerða landsins. Um er að ræða tímabundið fullt starf á grasafræðisviði sem sameinar fjölbreytta vettvangsvinnu og vinnslu landupplýsinga.

Helstu verkefni eru gróðurmælingar, skráning plantna og umhverfisaðstæðna og gerð og uppfærsla vistgerðakorta í samstarfi við aðra sérfræðinga stofnunarinnar. Leitað er að einstaklingi með meistaragráðu í líffræði, vistfræði eða skyldum greinum, haldgóða þekkingu á íslenskri flóru og reynslu af vettvangsvinnu og landupplýsingavinnslu.

Starfsstöð getur verið á Akranesi, Akureyri eða í Garðabæ. Umsóknarfrestur er til og með 30. október 2026.

Nánari upplýsingar um starfið