Skip to main content
search

Berggangur á Streitishvarfi sýnir hvernig ólíkar kvikur blandast

Ný vísindagrein sem birtist í tímaritinu Bulletin of Volcanology fjallar um rannsóknir á berggangi á Streitishvarfi á sunnanverðum Austfjörðum. Berggangurinn varð til þegar basaltkvika og kísilrík kvika blönduðust undir yfirborði jarðar fyrir um 10,7 milljónum ára.

Rof hefur afhjúpað bergganginn og gert vísindamönnum kleift að skoða innri gerð hans. Hann er um 26 metra breiður og er vel sýnilegur við ströndina sunnan Breiðdalsvíkur en hann má rekja með hléum um 14 kílómetra leið til norðurs. Berggangurinn er úr mismunandi bergtegundum sem liggja í aðgreindum beltum. Yst er dökkt basalt en nær miðju verður bergið smám saman kísilríkara og ljósara. Í miðju gangsins er ljóst, kísilríkt berg með dökkum basaltinnlyksum.

Rannsóknin byggðist á vettvangsathugunum, skoðun bergsýna í smásjá og efnagreiningum. Niðurstöðurnar sýna að kvikutegundirnar tvær blönduðust ekki allar í einu heldur í nokkrum aðskildum áföngum. Heit basaltkvika streymdi líklega endurtekið inn í kvikugeymslu í jarðskorpunni þar sem fyrir var kaldari og kísilríkari kvika. Við það hitnaði kísilríka kvikan, varð hreyfanlegri og blandaðist basaltkvikunni í mismiklum mæli. Mismunandi blöndur kvikunnar streymdu síðan í nokkrum áföngum inn í sprungu í jarðskorpunni og storknuðu þar.

Þar sem kvikan náði ekki að gjósa varðveittust ummerki um þetta ferli í bergganginum. Hann sýnir því eins konar þversnið af kvikukerfi og veitir sjaldgæfa innsýn í það hvernig ólíkar kvikutegundir geta blandast og brotið sér leið um jarðskorpuna

Robert Alexander Askew, jarðfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, er fyrsti höfundur greinarinnar. Að rannsókninni komu einnig vísindamenn við Háskóla Íslands, Université Clermont-Auvergne í Frakklandi og Edinborgarháskóla.

Askew, R. A., Laumonier, M., Gallagher, C. R., Thordarson, T., og Fitton, J. G. (2026). Magma mixing and mingling in Iceland: A case study of the Streitishvarf composite dyke. Bulletin of Volcanology, 88(8), Article 96. https://doi.org/10.1007/s00445-026-02021-4