Skip to main content
search

Gamlar loftmyndir nýttar til að mæla breytingar á landslagi

Ný vísindagrein í ritröðinni ISPRS Archives fjallar um alþjóðlega verkefnið HistoriX, sem miðar að því að bæta nýtingu gamalla loft- og gervitunglamynda við rannsóknir á breytingum á yfirborði jarðar. 

Gamlar ljósmyndir geyma mikilvægar upplýsingar um landslag fyrri tíma. Með því að vinna þrívíð líkön úr myndum sem teknar voru frá ólíkum sjónarhornum má reikna hæð lands og bera hana saman við nýrri mælingar. Þannig má meðal annars kanna hvernig jöklar hafa þynnst og landslag breyst vegna rofs eða eldvirkni. Loftmyndir hafa verið teknar frá því á fjórða áratug síðustu aldar og gervitunglamyndir frá því á þeim sjöunda og því er hægt að rekja breytingar langt aftur í tímann.

Úrvinnsla myndanna er þó vandasöm. Bjögun getur verið í skönnuðum filmum og upplýsingar um myndavélarnar og staðsetningu þeirra við myndatöku eru oft takmarkaðar. Ýmsar aðferðir hafa verið þróaðar til að vinna úr slíkum myndum, en hingað til hefur skort samræmdan samanburð á nákvæmni þeirra og takmörkunum.

Í verkefninu HistoriX fá þátttakendur sömu myndir og grunngögn til úrvinnslu, svo hægt sé að bera aðferðirnar saman á sambærilegum forsendum. Tvö rannsóknarsvæði voru valin: Casa Grande í Arizona í Bandaríkjunum og sunnanvert Ísland. Svæðin eru ólík að gerð og bjóða því upp á að prófa aðferðirnar við mismunandi aðstæður. Í Arizona hefur yfirborð lands víða breyst lítið, en á íslenska svæðinu eru meðal annars jöklar, hraun og strandsvæði þar sem náttúrulegar breytingar geta verið miklar. Íslensku loftmyndirnar eru úr safni Náttúrufræðistofnunar og voru teknar 22. ágúst 1980, sama dag og gervitunglamyndirnar sem notaðar eru af svæðinu. 

Í greininni eru kynntar fyrstu niðurstöður verkefnisins, byggðar á 40 gagnaskilum þar sem 18 mismunandi aðferðum var beitt. Niðurstöðurnar sýna meðal annars að minni munur var á hæðarlíkönum sem unnin voru úr loftmyndum en þeim sem unnin voru úr gervitunglamyndum. Enn er þó of snemmt að draga endanlegar ályktanir um niðurstöður einstakra aðferða.

Markmiðið er að skýra hversu nákvæmar hæðarmælingar má fá úr gömlum myndum og hvaða aðferðir henta best við ólíkar aðstæður. Jafnframt er unnið að því að gera gögn og hugbúnað aðgengileg, svo auðveldara verði að nýta myndasöfn við rannsóknir á langtímabreytingum í náttúrunni.  

Joaquín M. C. Belart sérfræðingur fjarkönnunar hjá Náttúrufræðistofnun er meðal höfunda greinarinnar.

Dehecq, A., F. Knuth, J.M.C. Belart, L. Piermattei, C. Ressl, A. Racoviteanu, R. McNabb, D. Shean, and L. Godin (2026). Historical Images for Surface Topography Reconstruction Intercomparison eXperiment (HistoriX). The International Archives of the Photogrammetry, Remote Sensing and Spatial Information Sciences XLIX-B2-2026, 9–16. https://doi.org/10.5194/isprs-archives-XLIX-B2-2026-9-2026