Skip to main content
search

Hakkaþon Copernicus Ocean

Hakkaþon Copernicus Ocean verður haldið í Húsi sjávarklasans við Grandagarð 16 helgina 16.–18. október næstkomandi. Þar gefst nemendum, frumkvöðlum og öðru áhugafólki tækifæri til að nýta gögn um hafið til að þróa lausnir á áskorunum sem tengjast hafsvæðum Íslands.

Hakkaþon er viðburður þar sem þátttakendur vinna saman að hugmyndum og þróa lausnir á skömmum tíma. Ekki er nauðsynlegt að hafa sérþekkingu á hafvísindum eða vera með lið til að taka þátt. Gögn úr hafþjónustu Copernicus verða í brennidepli. Þau  eru öllum opin og geta nýst til að bæta vöktun hafs og strandsvæða og stuðla að sjálfbærri nýtingu auðlinda.

Þátttaka er gjaldfrjáls og boðið verður upp á mat og drykk alla helgina. Heildarverðlaunafé er 150.000 krónur, auk þess sem verðlaunahafar fá stuðning og vinnuaðstöðu til að þróa hugmyndir sínar áfram.

Viðburðurinn er styrktur af Copernicus-vöktunaráætlun Evrópusambandsins en Náttúrufræðistofnun er fulltrúi Íslands í áætluninni.

Skráning á hakkaþon Copernicus Ocean