Heiðagæsir taldar um síðustu helgi
Um áratugaskeið hafa gæsir verið taldar á vetrarstöðvum á Bretlandseyjum. Um liðna helgi, 10.–11. október 2026, beindust talningar að heiðagæs.
Náttúrufræðistofnun safnar nú gögnum um heiðagæsir sem enn eru hér á landi og óskar eftir upplýsingum frá þeim sem hafa orðið varir við þær á síðustu dögum, þar á meðal hvar þær sáust og mat á fjölda þeirra. Upplýsingarnar verða sendar samstarfsaðilum hér á landi og á Bretlandseyjum sem taka saman árlegar skýrslur um gæsatalningar.
Vinsamlegast sendið upplýsingar til Svenju N.V. Auhage (svenja.auhage@natt.is).