Skip to main content
search

Ný rannsókn á myndun líparíts utan megineldstöðva

Ný vísindagrein í tímaritinu Mineralogy and Petrology fjallar um uppruna kísilríks líparíts á fjórum stöðum á Íslandi. Niðurstöðurnar benda til þess að kvikan hafi orðið til þegar eldra berg í jarðskorpunni bráðnaði að hluta. 

Rannsóknin nær til fjögurra aðskilinna líparítsvæða utan megineldstöðva: Prestahnúks, Mælifells, Ketilhyrnu og Sultarfells. Á öllum þessum stöðum myndaðist líparítið í gosum undir jökli. Í rannsókninni var kannað hvernig svo kísilrík kvika gat myndast án kvikukerfis sem hefur verið virkt um langan tíma, eins og algengt er undir megineldstöðvum.

Efnasamsetning bergsins og steinda þess var greind og reiknilíkön notuð til að kanna mögulegan uppruna kvikunnar. Niðurstöðurnar benda til þess að eldra djúpberg hafi bráðnað að hluta á um fjögurra kílómetra dýpi. Við það hafi myndast kísilrík kvika sem síðar barst til yfirborðs. Steindir í sýnum úr Prestahnúki styðja þessa túlkun. Sumar þeirra gætu verið leifar úr eldra berginu sem bráðnaði ekki að fullu og bárust með kvikunni upp á yfirborð. 

Kristján Jónasson jarðfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun er meðal höfunda greinarinnar.

Heimild Hughes, A.L., J.A. Cortés, D. McGarvie, H. Tuffen, K. Jónasson and A.G. (2026). Tindle Petrogenesis of isolated high-silica rhyolites in Iceland. Mineralogy and Petrology. https://doi.org/10.1007/s00710-026-00993-x