Skip to main content
search

Plöntuleifar varpa ljósi á hlý sumur undir lok síðasta jökulskeiðs

Ný vísindagrein í tímaritinu Quaternary Science Reviews fjallar um sumarhita í Mið-Evrópu undir lok síðasta jökulskeiðs, metinn út frá plöntuleifum í setlögum. Niðurstöðurnar benda til þess að meðalhiti í júlí í suðvesturhluta Slóvakíu hafi náð um 20°C fyrir 14.600–14.000 árum.

Rannsóknin byggist á plöntuleifum, einkum fræjum, aldinum og laufblöðum, frá tveimur stöðum í Slóvakíu. Slíkar leifar koma að jafnaði frá plöntum sem uxu á staðnum og gefa því góða vísbendingu um gróðurinn sem þar óx, en frjókorn, sem algengt er að nota í áþekkum rannsóknum, geta borist um langan veg.

Við mat á hitastigi var stuðst við nýtt evrópskt gagnasafn um vatna- og votlendisplöntur. Markmiðið var að safna saman gögnum frá Norður-Evrópu, þar sem nú er kaldara en í Slóvakíu. Þar á meðal eru gögn sem safnað var á árunum 2012 og 2013 í vistgerðaverkefni Náttúrufræðistofnunar. Með því að skoða við hvaða hitastig plönturnar vaxa í dag má áætla hversu hlýtt var þegar sams konar plöntur uxu á rannsóknarstöðunum í Slóvakíu. Ólíkar reikniaðferðir gáfu sambærilegar niðurstöður, sem styrkir matið.

Niðurstöðurnar benda til að hlýnun hafi hafist áður en svonefnt Bølling-hlýskeið gekk í garð. Fyrir um 16.200 árum hafi meðalhiti í júlí verið 16–17°C en náð um 20°C á hlýskeiðinu fyrir 14.600–14.000 árum. Í kjölfarið hafi kólnað verulega.

Plöntuleifarnar veita þannig upplýsingar um örar hitabreytingar á þessum tíma. Vatna- og votlendisplöntur eru næmar fyrir umhverfisaðstæðum yfir sumartímann og bregðast betur við örum hitabreytingum en margir aðrir hópar lífvera sem notaðir eru í fornvistfræðilegum rannsóknum sem þessum.

Meðal höfunda greinarinnar er Þóra Hrafnsdóttir, vatnalíffræðingur hjá Náttúrufræðistofnun.

Šolcová, A., Peterka, T., Divíšek, J., Alahuhta, J., Aroviita, J., Christoffersen, K. S., Baastrup-Spohr, L., Pedersen, O., Hrafnsdottir, T., Feldmann, T., & Hájková, P. (2026). High summer temperatures in Central Europe during the Bølling period (∼14.6–14.0 cal ka BP) inferred from plant macrofossils using a novel European calibration dataset. Quaternary Science Reviews, 393, Article 110301. https://doi.org/10.1016/j.quascirev.2026.110301