Skip to main content
search

Sveiflur í fjölda mýflugna fylgjast lítið að milli vatna

Ný vísindagrein í tímaritinu Aquatic Ecology fjallar um sveiflur í magni rykmýs í fimm vötnum á Norðausturlandi. Niðurstöðurnar sýna að þótt mikið sé af mýi við eitt vatn getur verið lítið við annað, jafnvel þegar stutt er á milli vatna.

Rannsóknin byggist á langtímavöktun með mýflugugildrum við Mývatn, Miklavatn, Sílalækjarvatn, Skjálftavatn og Víkingavatn. Ytriflói og Syðriflói Mývatns voru skoðaðir hvor í sínu lagi, enda eru búsvæði og algengustu tegundir rykmýs ólík milli flóanna.

Á öllum rannsóknarstöðunum komu fram endurteknar sveiflur í fjölda mýflugna en fjölgun og fækkun fylgdust lítið að milli staða. Þetta átti einnig við um flóa Mývatns. Við Víkingavatn fækkaði mýflugum þegar litið var yfir rannsóknartímabilið en við Skjálftavatn fjölgaði þeim, þótt stutt sé á milli vatnanna.

Niðurstöðurnar benda til þess að aðstæður innan hvers vatns, svo sem fæðuframboð, búsvæði og samspil tegunda, hafi mikil áhrif á sveiflurnar. Sameiginleg veðuráhrif og flutningur mýflugna milli vatna virðast ekki nægja til að þær fylgist að. Þessi munur milli vatna getur skipt máli fyrir fugla sem nærast á skordýrum. Þeir geta flutt sig milli svæða og nýtt sér að mikið er af mýi á ólíkum stöðum á mismunandi tímum.

Árni Einarsson líffræðingur, fyrrum forstöðumaður Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn, er meðal höfunda greinarinnar.

Adalsteinsson, V. F., Einarsson, Á., Ives, A. R., Kristjánsson, B. K., Sigurdardóttir, S. G., og Thórarinsson, T. L. (2026). Asynchrony in the dynamics of chironomids across six locations in northeastern Iceland. Aquatic Ecology, 60, 81. https://doi.org/10.1007/s10452-026-10321-2