Skip to main content
search

Tengsl veðurfars og varptíma hjá fálkum og förufálkum rannsökuð

Nýleg rannsókn sem birtist í vísindatímaritinu Global Change Biology sýnir að veðurfar tengist bæði varptíma og viðkomu fálka og förufálka á norðurslóðum. Breytingarnar eru þó ólíkar eftir tegundum og svæðum. 

Hlýnun er hraðari á norðurslóðum en víðast annars staðar á jörðinni. Breytingar á veðurfari hafa meðal annars áhrif á tímasetningu varps. Minna er þó vitað um þessi áhrif hjá ránfuglum en mörgum öðrum fuglum og hvort þau séu ólík hjá farfuglum og staðfuglum.

Rannsóknin byggist á langtímavöktun förufálka (Falco peregrinus) á ellefu svæðum og fálka (Falco rusticolus) á níu svæðum víðs vegar um norðurslóðir, meðal annars á Íslandi. Gögn um klak og ungafjölda voru borin saman við upplýsingar um hita, snjóþekju og gróður.

Förufálkar eru farfuglar en fálkar halda sig á norðlægum slóðum árið um kring. Niðurstöðurnar benda til þess að förufálkar flýti varpi sínu minna en fálkar. Það samræmist öðrum rannsóknum sem sýna að farfuglar sem fara langar leiðir fylgja fastari árstíðabundnum takti og laga varptímann síður að því hvenær vorar á varpslóðum.

Ungar klöktust fyrr en áður á fimm af níu rannsóknarsvæðum fálka og fjórum af ellefu rannsóknarsvæðum förufálka. Breytingarnar voru þó ekki alls staðar í sömu átt. Í íslensku gögnunum kom ekki fram skýr breyting á klaktíma yfir rannsóknartímabilið en þau ár sem snjóa leysti síðar klöktust ungarnir einnig síðar.

Þegar snjóa leysti fyrr klöktust ungar förufálka almennt fyrr og fleiri ungar komust upp hjá báðum tegundum. Færri ungar komu hins vegar upp þegar sumur voru hlýrri, þvert á það sem búist hafði verið við. Þetta samband var skýrara hjá förufálkum en fálkum. Í greininni er bent á að rannsaka þurfi þessi tengsl nánar, meðal annars hvort ungar séu viðkvæmari fyrir ofhitnun í hreiðrum en áður hefur verið talið.

Ólafur K. Nielsen fuglafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun er meðal höfunda greinarinnar.

Gulotta, N.A.,  K. Falk, S. Ambrose, N.W. Bakner, P.J. Bente, T.L. Booms, K.K. Burnham, S. Carrière, M.T. Henderson, S. Kharitonov, A.V. Kondratyev, O. Kulikova, P. Lindberg, B-O. Lindström, S. Mechnikova, D. Mossop, S. Møller, Ó.K. Nielsen, K. Nilsson, T. Ollila, S. Orrhult, I. Pokrovsky, M. Restani, B.W. Robinson, R.N. Rosenfield, T. Swem, P.H. Wightman, N.P. Huffeldt. (2026). Resident and Migratory Falcons' Breeding Phenology and Productivity Respond Differently to Weather and Climate Change Across the Arctic. Global Change Biology 32(8): e71022. https://doi.org/10.1111/gcb.71022