Skip to main content
search

Tvær aldir frá fæðingu Benedikts Gröndal

Í dag, 6. október, eru 200 ár liðin frá fæðingu Benedikts Gröndal, skálds, fræðimanns og náttúrufræðings. Benedikt átti ríkan þátt í stofnun Náttúrugripasafnsins í Reykjavík, sem starfsemi Náttúrufræðistofnunar á rætur að rekja til. Í tilefni af afmælinu verður opnuð sýning í Þjóðarbókhlöðu þar sem meðal annars verður sýnt handrit hans að Íslenskum fuglum, sem varðveitt er hjá Náttúrufræðistofnun.

Benedikt var helsti hvatamaður að stofnun Hins íslenska náttúrufræðifélags árið 1889 og fyrsti formaður þess. Eitt helsta verkefni hans sem formanns var að koma á fót náttúrugripasafni í Reykjavík. Markmiðið var að safna náttúrugripum landsins á einn stað og gera almenningi kleift að kynnast íslenskri náttúru. Benedikt varð fyrsti umsjónarmaður safnsins og annaðist það til ársins 1900.

Samhliða uppbyggingu safnsins vann Benedikt að skráningu dýra og plantna með lýsingum og teikningum. Eftir hann liggja bæði handrit og stakar myndir af íslenskum dýrum og gróðri, þar sem þekking hans á náttúrunni, teiknihæfileikar og skrautskrift fara saman.

Meðal þessara verka er handritið Íslenskir fuglar, sem varðveitt er hjá Náttúrufræðistofnun. Það hefur að geyma 100 tölusettar fuglateikningar, sumar með fleiri en einni tegund, ásamt lýsingum sem Benedikt skrautskrifaði sjálfur. Við gerð myndanna studdist hann meðal annars við eintök úr Náttúrugripasafninu. Í vörslu stofnunarinnar eru einnig skissur Benedikts af sjávargróðri og botndýrum. Handrit hans hafa nú verið gerð aðgengileg í stafrænni útgáfu og má skoða þau á handrit.is.

Íslenskir fuglar komu jafnframt út á bók hjá Crymogeu árið 2011 í samstarfi við Náttúrufræðistofnun Íslands.

Í tilefni af afmælinu verður sýningin Benedikt Gröndal – Frá vöggu til grafar opnuð í Þjóðarbókhlöðu í dag kl. 17. Sýningin er helguð ævi hans og verkum og dregur upp mynd af fjölbreyttum störfum hans sem skálds, fræðimanns og náttúrufræðings. Þar verður meðal annars til sýnis handritið að Íslenskum fuglum úr vörslu Náttúrufræðistofnunar.

Örn Hrafnkelsson landsbókavörður opnar sýninguna og Guðrún Laufey Guðmundsdóttir, sérfræðingur í handritasafni, segir stuttlega frá henni. Að því loknu gefst gestum tækifæri til að skoða sýninguna og þiggja léttar veitingar.