Mat fugla á válista 2025
Válistar eru opinberar skrár yfir lífverur sem eiga undir högg að sækja eða eru í hættu og eru þeir ein af meginstoðum náttúruverndar í heiminum. Mat á þeim hættum sem kunna að steðja að einstökum tegundum og tillögur um verndun eru tveir aðskildir hlutir. Í válistum felst því EKKI forgangsröðun verndaraðgerða, þótt þær byggi á slíku mati. Allar tegundir eru flokkaðar eftir alþjóðlega viðurkenndu kerfi Alþjóðanáttúruverndarsambandsins (IUCN). Markmið flokkunar er hættumat, reynt er að segja fyrir um líkur á því að tegund kunni að deyja út. Tegundir eru bæði metnar á heimsvísu og á svæðisvísu og getur matið náð til einstakra landa, staðbundinna stofna eða undirtegunda.
Válistamat
Í stuttu máli þá er válistamat miðað við fjóra höfuðþætti: (1) hversu algeng tegundin er, (2) útbreiðslumynstur, þ.e. hvort tegundin er mjög staðbundin eða dreifð, (3) stofnbreytingar á tilgreindu tímabili sem tekur mið af kynslóðalengd, (4) tölfræðilegri spá um stofnbreytingar í framtíðinni. Á svæðisbundnum válistum er auk þess tekið tilliti til þess hvort um einangraða stofna er að ræða og líkur metnar á landnámi út frá lífsháttum tegundar.
Tegundir sem eru metnar
Til skoðunar við gerð Válista fugla 2025 voru allar fuglategundir sem sést hafa hér á landi og borist hingað af eigin rammleik, alls yfir 400. Eiginlegt mat tók þó aðeins til þeirra tegunda sem hafa orpið hér samfellt síðastliðin 10 ár (81 tegund), reglulegra gesta sem viðunandi upplýsingar lágu fyrir um (6 tegundir) og fyrrum reglulegra varpfugla (4 tegundir). Alls er um að ræða 91 tegund. Öllum flækingsfuglum var sleppt en þó skal samkvæmt reglum IUCN geta þeirra flækingsfugla sem eru á heimsválista, óháð stöðu þeirra hér á landi.
Heimilt er samkvæmt leiðbeiningum IUCN um svæðisbundið mat að færa þær tegundir niður um válistaflokka sem eru hér á mörkum útbreiðslu sinnar og með afar litla stofna ef líkur á landnámi teljast miklar. Þetta á t.d. við um margar þær tegundir sem byrjað hafa varp hér á síðustu árum og eru jafnframt algengir flækingsfuglar.
Af 91 tegund sem var metin eru 43 á válista Náttúrufræðistofnunar 2025. Ein tegund er útdauð í heiminum, 3 tegundir eru útdauðar sem varpfuglar á Íslandi, 4 tegundir eru í bráðri hættu, 10 tegundir í hættu og 25 tegundir í nokkurri hættu. Loks eru 19 tegundir í yfirvofandi hættu að lenda á válista. Helsta breytingin frá Válista fugla 2018 er að fjölgað hefur um 11 tegundir í flokknum í yfirvofandi hættu.
Útdauð (EX)
Geirfugl er sem betur fer eina tegundin í þessum flokki líkt og á öllum válistum síðan 2000.
Útdauð í náttúrunni (EW)
Engin tegund, líkt og á öllum válistum síðan 2000.
Útdauð sem varpfugl á Íslandi (RE)
Haftyrðill, keldusvín og gráspör hafa bæst í þennan hóp frá Válista 2000 en voru á Válista fugla 2018.
Í bráðri hættu (CR)
Fjórar tegundir eru á Válista fugla 2025: Fjöruspói, lundi, skúmur og svartbakur.
Svartbakur bætist við listann frá 2018 en ör stofnfækkun hefur komið fram í vetrarfuglatalningum Náttúrufræðistofnunar.
Í hættu (EN)
Tíu tegundir eru í þessum flokki á Válista fugla 2025: Blesgæs, duggönd, fálki, fýll, haförn, hvítmáfur, kjói, sendlingur, sjósvala og þórshani.
Á Válista fugla 2018 voru tvær tegundir sjófugla; stuttnefja og teista, í þessum flokki en hafa nú færst í minni hættuflokk vegna fjölgunar í stofni. Fálki og sjósvala eru nýjar tegundir í þessum flokki en fækkað hefur ört í þeim stofnum á síðustu árum.
Í nokkurri hættu (VU)
Í þessum flokki eru 25 tegundir á Válista fugla 2025: Barrfinka, dvergmáfur, eyrugla, fjallkjói, gargönd, gulönd, heiðlóa, himbrimi, hrafn, húsönd, kría, lóuþræll, rita, skeiðönd, skógarsnípa, skrofa, snjótittlingur, snæugla, spói, stelkur, stormsvala, stuttnefja, súla, teista og tjaldur.
Á Válista fugla 2018 voru 23 tegundir í þessum flokki. Helsta breytingin er sú að nokkrir stofnar vaðfugla teljast nú í nokkurri hættu eftir að mófuglatalningar víðsvegar um landið hafa nú staðið yfir nógu lengi til að hægt sé að meta stofnbreytingar og sýna þær í flestum tilvikum fækkun. Þessar tegundir eru heiðlóa, lóuþræll, spói og stelkur. Auk þess telst gargönd nú í meiri hættu vegna fækkunnar á Mývatni. Teista er færð niður um flokk úr því að teljast í hættu vegna fjölgunar í vetrarfuglatalningum. Tegundir sem voru í nokkurri hættu árið 2018 en hafa færst til eru fálki og sjósvala sem teljast nú í hættu og toppskarfur, langvía og æðarfugl sem teljast nú í yfirvofandi hættu.
Á Válista fugla 2000 var þessi flokkur kallaður í yfirvofandi hættu.
Í yfirvofandi hættu (NT)
Nítján tegundir eru í þessu flokki: Brandugla, flórgoði, grafönd, grágæs, jaðrakan, langvía, músarrindill, óðinshani, rauðhöfðaönd, rjúpa, silfurmáfur, sílamáfur, skúfönd, straumönd, tildra, toppönd, toppskarfur, urtönd og æðarfugl.
Árið 2018 voru þær átta: Álka, brandugla, gargönd, grafönd, hávella, rjúpa, silfurmáfur og stelkur.
Vísitala úr vetrarfuglatalningum sýnir fjölgun hávellu sem telst nú ekki í hættu. Nokkrar andategundir sem voru flokkaðar sem ekki í hættu teljast nú í yfirvofandi hættu vegna fækkunnar í vetrarfuglatalningum eða á varpsvæðum, þá helst Mývatni. Þetta eru flórgoði, rauðhöfðaönd, skúfönd, straumönd, toppönd og urtönd. Jaðrakan hefur sýnt fækkun á flestum svæðum í mófuglatalningum, en fjölgaði marktækt í Þingeyjarsýslum og telst því í yfirvofandi hættu. Óðinshani var flokkaður sem gögn vantar árið 2018. Vísitölur fyrir stofn grágæsar, sílamáfs og tildru sýna fækkun í stofni og teljast því nú í yfirvofandi hættu. Lítið er vitað um músarrindla hér á landi en fækkunnar hefur orðið vart í vetrarfuglatalningum ásamt því að minna er merkt af músarrindlum en áður var og færist hann því upp um flokk.
Gögn vantar (DD)
Tvær tegundir voru í þessum flokki á Válista fugla 2000: Óðinshani og sílamáfur sem flokkast nú í yfirvofandi hættu.
Hvers vegna lenda tegundir á válista ?
Helstu ástæður þess að fuglategundir lenda á válista eða teljast í yfirvofandi hættu eru litlir stofnar, staðbundin útbreiðsla eða neikvæð stofnþróun.