Borgarland
Kortasjá
Stærð: 5 km2
Flokkun:Landmótun ísaldarjökla - Setmyndanir
Jarðsaga: Bølling, Allerød, Yngra Dryas
Aldur: 14.100 ár BP
Mörk
Mörkin liggja meðfram nesinu á milli Berufjarðar og Króksfjarðar og yfir nesið norðan við Hafrafellsvatn.
Lýsing
Efstu fjörumörk á svæðinu við Bjarkarlund eru frá 78 m h.y.s. í 98 m h.y.s. og er talið að þau hafi myndast fyrir meira en 14.100 árum. Afflæði varð á svæðinu á þessum tíma og lægri fjörumörk mynduðust í um 60 m h.y.s. Rannsóknir á kísilþörungum í setkjörnum sem voru teknir úr Berufjarðarvatni og Hafrafellsvatni sýna breytingar úr sjávarumhverfi yfir í ferskvatnsumhverfi. Hins vegar reyndist erfitt að aldursákvarða þær breytingar en talið er líklegt að svæðið hafi verið íslaust fyrir meira en 14.100 árum. Í setkjörnunum fannst Saksunarvatn gjóska en hún er talin hafa myndast fyrir um 10.200 árum.
Forsenda fyrir verndun
Nesið á milli Króksfjarðar og Berufjarðar (Borgarland) er vel afmarkað svæði sem geymir syrpur greinilegra og formfögur landform fornra fjörumarka í um 85 m h.y.s. Nyrst á nesinu er Hafrafellsvatn en setlög í botni þess eru tilefni til frekari rannsókna.
Ógnir
Skógrækt, frístundabyggð.
Núverandi vernd
| Náttúruminjaskrá | Númer |
|---|---|
| Borgarland, Barðaströnd | C-302 |
Mat á verndargildi
| Viðmið | Gildi |
|---|---|
| Vísindalegt gildi | Mjög hátt |
| Fágæti | Hátt |
| Jarðbreytileiki | Mjög hátt |
| Upprunaleiki | Mjög hátt |
| Samfella | Mjög hátt |
| Fræðslugildi | Mjög hátt |
Heimildir
Hreggviður Norðdahl, Halldór G. Pétursson, 2005.Relative Sea-Level Changes in Iceland: new Aspects of the Weichselian Deglaciation of Iceland. In: Caseldine, C., Russel, A., Hardardottir, J. & Knudsen, O. (Eds.), Iceland - Modern Processes and Past Environments, pp. 25-78. Elsevier, Amsterdam. 25-87.
Lloyd, Jerry M., Hreggviður Norðdahl, Michael J. Bentley, Anthony J. Newton, Owen Tucker, Yongqiang Zong, 2009. Lateglacial to Holocene relative sea-level changes in the Bjarkarlundur area near Reykhólar, North West Iceland. Journal of Quaternary Science (2009) 24(7) 816–831.
Síðast uppfært
Gefið út 30.10.2026